50 g sýrður rjómi
1 tsk sætt sinnep (danskt í gulum brúsum)
Sæta eftir smekk
Blanda allt saman og smakka til með sætu.
50 g sýrður rjómi
40 g létt majónes
1 – 2 hvítlauksrif
Hvítlaukssalt
Sæta eftir smekk.
Blandið saman sýrða rjómanum og majónesinu. Pressið hvítlaukinn eða skerið mjög smátt og bætið út í sósuna. Kryddið með smá hvítlaukssalti og smakkið svo til með sætu. Best er að gera sósuna að minnsta kosti 2 tímum fyrir mat svo hvítlaukurinn nái að gefa frá sér bragð en það er samt engin fyrirstaða í tímaþröng.
10 g létt majónes
25 g sýrður rjómi
1/2 tsk sætt sinnep
1/2 tsk dill
Sæta eftir smekk
Blandið saman og smakkið til með sætu. Mér finnst gott að hafa svolítið mikið af sætu.
30 g létt majónes
2 tsk tómatsósa
1/2 tsk sæta (eða eftir smekk)
Blandið og njótið.
50 g sýrður rjómi (5%)
2 tsk tómatsósa
1/2 tsk sæta (eða eftir smekk)
Blandið og njótið. Þessi er ekkert síðri en majónessósan og fín ef maður er búinn með fituskammtinn. Einnig væri hægt að nota til helminga, t.d. 25 g sýrðan rjóma og restina af fituskammtinum.
150 g passata (100% tómatmauk frá t.d. La Selva)
50 g sýrður rjómi (5%)
1 hvítlaukslauf smátt skorið
Krydd, t.d. oreganó, timian, steinselja, rósmarín og fleira gotterí.
Rosalega gott að nota frosnu kubbana sem fást í ýmsum búðum. Það er ferskar kryddjurtir en ekki þurrkaðar.
ATH. þetta telur ekki í extra 2 þar sem sósan eru bara maukaðir tómatar.
Birt með leyfi olofbj
1 rauðlaukur
3 hvítlauksrif
2 tsk góð olía
2 dósir tómatar (crushed eru bestir)
1 tsk oregano
1 tsk basilíka
1 tsk salt
1/2 tsk pipar
1/4 tsk piri piri (frá Pottagöldrum)
Saxið rauðlaukinn og pressið hvítlaukinn. Hitið olíuna í stórum potti og steikið laukinn og hvítlaukinn þar til mjúkur. Bætið tómatadósunum út í, ef tómatarnir eru heilir er gott að mauka þá fyrst til að kom í veg fyrir stóra bita. Bætið kryddunum út í og látið mauka, án loks, við vægan hita í minnst 40 mínútur eða þar til sósan er orðin þykk.
Þetta er mikil sósa svo gott er að frysta afganginn. 100 grömm í hvern poka hentar vel sem góður skammtur á pizzu.
Þessa sósu er að sjálfsögðu líka hægt að nota sem pastasósu eða með hverju sem er, hún er mjög góð!
Nýleg ummæli