1 dl létt ab mjólk
1 egg
10 g létta (smjör)
25 g undanrennuduft
25 g hveiti
1 tsk lyftiduft
1/4 tsk vanilludropar
Smá sæta
Öllu blandað saman og steikt í vöfflujárni. Hér eru 5 krossar í extra fyrir hveitið.
30 g brauð
1 egg
kanill
Þeytið eggið í djúpum disk og kryddið með 1/2 tsk af kanil. Veltið brauðinu upp úr blöndunni og steikið á pönnu á lágum hita. Ekki gleyma ávextinum!
Notkun: Egg x Brauð x
30 g hafragrjón
Vatn (1 skammtur hafragrjón á móti 2 skammtar vatn)
Setjið í disk og diskinn inn í örbylgjuofn. Stillið öbbann á mínútu á hæsta styrk. Hrærið og setjið aftur inn í mínútu.
Ef þið viljið poppa hann upp stappið þá hálfum banana útí og borðið án mjólkur.
Notkun: Morgunkorn x
1 spælt egg
30 g ristað brauð
2 tsk tómatsósa (má sleppa)
Þú hitar pönnu með smá olíu ef þarf og brýtur eggið yfir hana. Síðan steikirðu það í u.þ.b. 4-5 mínútur. Á meðan ristarðu brauð og mælir 1-2 tsk af tómatsósu á disk. Þegar eggið er tilbúið sprengirðu rauðuna og smyrð henni yfir ristaða brauðið. Svo leggurðu spæleggið ofan á brauðið með sunny side up.
Borðið með hníf og gaffli og dýfið bitunum ofan í tómatsósuna. Mjög gott með glasi af appelsínusafa.
Það má sleppa tómatsósunni ef þið eruð að spara extrað.
Notkun: Egg x Extra 2 xx Brauð x
Nýleg ummæli