100 g kartöflur
1 grænt epli
1/2 rauðlaukur
30 g létt majó
25 g sýrður rjómi (10%)
Sjóðið kartöflurnar, flysjið og látið kólna. Skerið eplið í litla bita og laukinn mjög smátt. Setjið í skál ásamt kartöflunum, majónesinu og sýrða rjómanum. Blandið saman og berið fram með fiskibollum, hamborgara, grillmat eða hverju sem hugurinn girnist.
Einn daginn langaði mig svo svakalega í kartöflusalat en tímdi ekki ávexti svo mér datt í hug að nota sellerírót í staðinn. Það kom mjög vel út, ég fann varla bragðarmun!
100 g sellerírót í litlum bitum
1 grænt epli
1/2 rauðlaukur
30 g létt majó
25 g sýrður rjómi
Sjóðið sellerírótina og látið kólna, passið að ofsjóða hana ekki, hún á að vera pínu stinn. Skerið eplið í litla bita og laukinn mjög smátt. Setjið í skál ásamt sellerírótinni, majónesinu og sýrða rjómanum. Blandið saman og berið fram með fiskibollum, hamborgara, grillmat eða hverju sem hugurinn girnist.
1/2 rófa
1/2 sellerírót
6 gulrætur
1 rauðlaukur ef vill
1-2 tsk olía
Rósmarín
Herbes de Provence
Skerið rófuna niður í litlaputta stóra strimla, sellerírótina í litla kubba, gulræturnar í helming þversum (fjórðung af þær eru þykkar) og laukinn í litla báta.
Setjið allt í stórt eldfast fat og dreifið olíunni yfir. Kryddið svo með rósmarín og herbes de Provence. Mjög gott sunnudagsmeðlæti.
1 stór steinseljurót
1 meðalstór rauðlaukur
4-6 meðalstórar gulrætur
6 meðalstór rif hvítlaukur
Pipar
Salt (herbamare jurtasaltið er mjög gott)
Skerið steinseljurótina og gulræturnar í litla bita en rauðlaukinn í stærri bita. Afhýðið hvítlauksrifin og kremjið þau með hliðinni á hnífnum til að “kveikja á” bragðinu í þeim. ![]()
Setjið grænmetið í eldfast mót og saltið og piprið. Hyljið með álpappír.
Setjið í forhitaðan 200° heitan ofn í 45 mínútur. Gott er að taka álpappírinn af seinustu 10-15 mínúturnar.
Athugið að bæði steinseljurótin og laukurinn eru takmörkuð við 150 g á dag þannig að ekki vigta meira en 200 g af þessum rétt á dag.
Snöggsteiktar sykurbaunir og sveppir
2 tsk olía
1 pressað hvítlauksrif
250 g sveppir
150 g sykurbaunir/snjóbaunir
Hitið olíuna og pönnu og hitið hvítlaukinn í henni. Hvítlaukurinn má ekki verða brúnn því þá kemur beiskt bragð. Þú ert í raun að infjúsa olíuna með hvítlauksbragði. Eftir smástund þá hækkarður hitann í mesta og lætur sveppina út í. Þá snöggsteikirðu í 1 – 1 1/2 mínútu. Síðan seturðu sykurbaunirnar út í og snöggsteikir áfram í mínútu. Það er allt og sumt!
2 paprikur
4 skallotlaukar
1 hvítlaukslauf
1/2 rauður chilipipar
1/2 kúrbítur
150 g soðin hrísgrjón
10 g olía
Smá balsamic edik
Skerið paprikurnar í helminga og hreinsið úr kjarnan. Setjið þær í ofnfast mót og inn í ofn við 180°c í 20-30 mínútur. Gott er að pensla þær með olíu en ekki nauðsynlegt.
Á meðan paprikurnar eru að bakast skaltu sjóða hrísgrjón, kúskús, quinoa eða hvað annað korn sem þig langar að nota.
Skerðu chili piparinn, hvítlaukinn, skallotlaukinn og kúrbítinn mjög smátt og steiktu létt á pönnu rétt áður en paprikurnar eru til.
Vigtaðu 75 g af grjónum í skál og hrærðu saman við helminginn af grænmetisblöndunni. Fylltu svo tvo paprikuhelminga með blöndunni. Gerðu eins við restina. Að lokum skaltu píska saman olíu og edik og hella yfir hrísgrjónablönduna.
1 butternut squash (barbapabbagrasker)
Sætuefni
Smá viðbit (má sleppa)
Skerið graskerið í fernt langsum og bakið í ofni við 180°c í 45 mínútur til klukkutíma. Skafið svo holdið úr og setjið í blandara. Setjið nokkra dropa af sætu út í og blandið. Smakkið til. Ef vill er hægt að setja smá viðbit út í.
Nýleg ummæli