Dídí í átaki

Kvöldmatur

Chili con carne (f. 2)

2 laukar
1 paprika
2-3 gulrætur
4 hvítlauksrif
2 tsk olía
1 dós niðursoðnir tómatar (crushed ef þið viljið spara tíma)
2/3 hluti stór grænmetisteningur (leysa upp í 2 dl af vatni)
1 tsk paprikuduft
1 dós forsoðnar nýrnabaunir
1-2 tsk chiliduft
1/2 – 1 tsk kumminduft
250 g nautahakk
Skerið lauk, papriku og gulrætur. Pressið hvítlaukinn. Hitið olíuna í potti og látið grænmetið og hvítlaukinn krauma í henni. Skerið tómatana og setjið út í pottinn ásamt tómatleginum, soði og paprikudufti. Látið sjóða við vægan hita í 5-10 mínútur. Á meðan grænmetishlutinn er að malla sigtið vökvann af baununum og skolið vel. Steikið hakkið.
Bætið 220 grömmum af baunum og 170 g af nautahakki út í og látið malla í 5 mínútur. Skiptið í tvo jafna skammta. Njótið! Hægt er að frysta annan helminginn og geyma þar til letin kemur yfir ykkur. :)

Krossar
1x kjöt
1x extra

Salat með lambalundum

Salat

Klettasalat
Lambhagasalat
Appelsínugul paprika
Radísur
Gulrætur
Agúrka
Furuhnetur
Sítrónuolía
Lambalundir (ca 300 g)

Takið lambalundirnar úr ísskápnum nokkru fyrir og leyfið þeim að ná stofuhita. Berjið lundirnar með flötum kjöthamri (eða kökukefli með plastfilmu yfir) og berið smá olíu á. Kryddið með smá nýmöluðum svörtum pipar. Setjið til hliðar.

Undirbúið salatið, ristið furuhneturnar og skerið grænmetið í hæfilega bita. Setjið 150 – 200 grömm af grænmeti á disk og drizzlið yfir 5 grömmum af sítrónuolíu og 5-10 g af furuhnetum.

Steikið lundirnar í 1-2 mínútur á hvorri hlið, skerið þær síðan í litla bita og dreifið yfir salatið. Njótið svo með bestu lyst. )

Það er örugglega gott að borða smá súpu með til að fylla upp í skammtinn, eða þyngja salatið með alfaalfa (refasmára) og meira grænmeti.

Beef stroganoff

6 tsk hveiti
Salt & pipar
400 g gúllas eða annað nautakjöt í bitum
1/3 grænmetisteningur (eða einn lítill)
1 bolli heitt vatn
1 meðalstór rauðlaukur
250 g sveppir (má vera meira)
1 dl sýrður rjómi

Blandið hveiti, salti og pipar saman í skál og húðið kjötbitan með blöndunni. Leysið teninginn upp í vatninu og blandið afgangshveiti vel saman við vatnið.

Skerið laukinn í bita og sveppina í þykkar sneiðar.

Steikið kjötið á heitri pönnu með smá olíu í 2 mínútur, hrærið stanslaust. Bætið lauknum við og steikið í aðrar tvær mínútur, hrærið stanslaust. Bætið sveppunum við og steikið í 4 mínútur, hrærið af og til. Bætið soðinu út í og látið malla í fimm mínútur. Takið þá af hellunni og hrærið sýrða rjómanum út í.

Krossar
1x kjöt
31/2x extra
Í raun er öll sósan aldrei borðuð og hef ég miðað við 2x þegar ég geri þennan rétt þar sem meiri hluti sósunnar verður eftir. Eins verður að áætla mjólkina eitthvað.

Pasta basta!

Pasta basta!
1 paprika
1/2 kúrbítur
1 rauðlaukur
50 – 100 g gulrætur
1 kassi sveppir
400-500 g nautahakk
300 g passata (velja hreina, án aukaefna)
Spelt pasta

Sjóðið pasta.
Skerið allt grænmetið í bita. Steikið hakkið og setjið það svo í sigti yfir vask og látið fituna leka af því. Steikið nú grænmetið í sömu pönnu og hakkið, oftast er fitan sem varð eftir af hakkinu nóg en mögulega þyrfti að bæta við hálfri teskeið af góðri kaldpressaðri ólífuolíu. Þegar grænmetið er orðið mjúkt þá setjiði það á disk. Vigtið svo 250 grömm af grænmetinu aftur á pönnuna og 120-170 grömm af hakkinu. Bætið út í 150 grömmum passötunni og látið malla í tvær mínútur. Passatan telst sem grænmeti þar sem hún er 100% tómatar.
Vigtið 75 grömm af pastanu á disk og hellið réttinum útá. Að sjálfsögðu má sleppa pastanu ef vill.
Njótið!

A.T.H. þetta er mjög saðsamur réttur svo ef þið eruð matgrönn þá mæli ég með minnsta skammti af kjöti. Uppskriftin er miðuð við tvo.

Mexican kjúlli

Fyrir tvo

Kjúlli mexican style

1-2 kjúklingabringur (eftir stærð)
1 stór rauð paprika
1 rauðlaukur
1 box sveppir
200 g sýrður rjómi
100 g taco sósa
1 tsk Casa Fiesta Taco seasoning mix
Smá vatn

Byrjið á að skera kjúklinginn í munnbitastærð (bite size). Skerið svo grænmetið (mér finnst gott að hafa sveppabitana stóra og laukinn smáttsaxaðann).
Steikið kjúklinginn á pönnu í 1/4 tsk kaldpressaðri ólífuolíu (má sleppa) í 3-5 mínútur. Bætið svo kryddinu á pönnuna og smá vatni með. Látið malla þar til vatnsblandan er orðin að mauki, hrærið reglulega.
Steikið því næst grænmetið þar til það er passlega mjúkt.
Vigtið 300 g grænmeti, 150 g kjúkling, 100 g sýrðan rjóma og 50 g taco sósu á disk og setjið aftur á pönnuna. Blandið saman og hitið.
Ef þú ert meira fyrir taco bragðið þá geturðu minnkað sýrða rjómann í 50 g.

Plokkfiskur à la Dídí

Fyrir tvo

Plokkfiskur

300 g soðin ýsa
200 g kartöflur
1 meðalstór laukur
6 tsk hveiti
2 tsk olía
30 g smyrja
3 dl undanrenna
Salt og pipar

Steikið laukinn í potti í 2 tsk olíu á mann. Setjið hitann á næstneðstu stillingu og bætið smyrjunni í pottinn og látið bráðna. Bætið 6 tsk af hveiti út í og búið til hveitibollu. Þynnið hveitibolluna hægt og rólega út með mjólkinni. Þegar sósan er tilbúið setjið þá fiskinn og kartöflurnar í bitum út í og saltið og piprið.
Gjöriði svo vel!
Passa verður að seinni skammturinn af olíu verði ekki of heitur, takið þá frekar pottinn af hellunni. Ef hún hitnar um of þá eyðileggst notagildi hennar fyrir okkur.

Fiskibollur

Laxabollur

2-3 skammtar
600 g fiskur (t.d. ýsa eða lax)
30 g rauðlaukur
8 strá graslaukur
3 tsk hveiti
1 tsk olía til að steikja upp úr.

Roðflettið laxinn og skerið í litlar ræmur, hakkið svo niður með hnífnum. Skerið rauðlaukinn smátt og klippið graslaukinn í litla bita. Blandið öllu saman í skál og bætið út í 3 tsk af hveiti. Svona lítur hakkið út þegar það er tilbúið:

Laxabolluhakk

Hitið olíuna á pönnu á meðalhita. Mótið bollur úr hakkinu og steikið á báðum hliðum (í u.þ.b. 15 mínútur).

Berið fram með t.d. kokteilsósu og bökuðu grænmeti.

Fiskrétturinn hennar Bumbuskvísu

Löguð að smekk Dídíar

170 g ýsa
1 dl sýrður rjómi
20 g létt mæjónes
250 g sveppir
1 paprika
1 rauðlaukur
Karrý de lux frá Pottagöldrum


Skerið ýsuna í bita og setjið í eldfast mót. Hrærið saman sýrða rjómanum og létt mæjónesinu. Setjið karrý saman við eftir smekk. Setjið sósuna yfir fiskinn. Léttsteikið grænmetið á pönnu og setjið yfir fiskinn. Bakið við 180° í ca 30 mínútur, fer þó eftir þykkt stykkjanna.

Hádegismatur sem kvöldmatur

Uppskriftirnar hér að neðan eru í raun hádegismatur en til að borða þær í kvöldmat þarf að svissa út hádegismat og kvöldmat. Auðvitað er hægt að borða þær í hádeginu líka. :)

Besta lasagne í heimi!

Fyrir þrjá
400 g nautahakk
2 rauðar paprikur
2 meðalstórir rauðlaukar
1/2 kúrbítur
4-6 meðalstórar gulrætur
1 1/2 pakki sveppir
2 krukkur pastasósa (150 g á mann) (ég nota Fertilla pizza sauce)
9 lasagneplötur (ég nota Rapunzel vollkorn plötur í grænu pökkunum)
2 dósir 5% sýrður rjómi (150 g á mann) (frá Mjólku)
75 g pizza ostur

Skerið grænmetið í frekar litla bita, sérstaklega gulræturnar. Steikið hakkið og setjið í sigti, leyfið fitunni að leka af því meðan þið steikið grænmetið. Gott er að steikja grænmetið í nokkrum hollum því þetta er rosalega mikið og það vill verða blautt og leiðinlegt ef maður steikir allt í einu.
Vigtið svo 60 g hakk, 300 g grænmeti og 150 g sósu í skál, skellið á pönnuna og leyfið að hitna í gegn.
Takið eina lasagne plötu og smyrjið með 1/3 af sýrða rjómanum (50 g) á plötuna og leggið hana svo í mótið, setjið helminginn af hakkblöndunni ofan á, endurtakið með næsta lag. Setjið svo síðustu plötuna efst, smyrjið með restina af sýrða rjómanum (50 g) og dreifið 25 g af pizzaosti yfir.
Rífið smá álpappír og búið til “vegg” úr honum til að hafa milli skammtanna svo þið séuð viss um að fá bara það sem þið vigtuðuð.
Vigtið, hitið og hlaðið næsta skammt og svo þann þriðja.

Setjið í forhitaðan 180° heitan ofn og bakið í 35 mínútur.

Þetta tekur langan tíma að gera en mér finnst það vel þess virði enda alveg hrottalega gott. :) Best er að svissa hádegis og kvöldmat og borða þetta um kvöld.

Pizza extraordinaire

Fyrir tvo

Pizza

Ég nenni ekki að gera mitt eigið deig og kaupi því Jóa Fel pizzadeig en það er mjög gott. Það fæst í Hagkaupum og kemur sem deigklessa í svörtu plastformi.

1 box Jóa Fel pizzadeig eða sambærilegt
1 – 2 tsk ólífuolía
200 – 300 g heimatilbúin pizzasósa eða búðarkeypt, t.d. Hunt’s
250 g sveppir í sneiðum
1/2 rauð paprika í sneiðum
Nokkrir rauðlaukshringir
1 tómatur í sneiðum
1 poki pizza ostur (23%)
Gott krydd, t.d. lífrænt pizzakrydd frá Lebensbaum eða Heitt pizzakrydd frá Pottagöldrum
1 hvítlauksrif

Fletjið degið út frekar þunnt á ofnplötu, gott er að hafa bökunarpappír undir. Penslið deigið með ólífuolíunni, líka kantana. Setjið deigið inn í forhitaðan 160°c heitan ofn og bakið í 5 mínútur. Fylgist vel með deiginu því það myndast stórar loftbólur sem þarf að stinga á og lofttæma.
Þegar deigið er bakað takið þá plötuna út og skerið aðeins minna en 1/3 af botninum á mann, vigtið til að vera örugg um að botninn sé 90 grömm. Dreifið u.þ.b. 100 g af pizzasósunni yfir pizzuna. Ekki er gott að reyna að búa til kanta því þeir verða bara harðir og óætir, dreifið því sósunni jafnt yfir og alveg út á enda. Dreifið grænmetinu og hvítlauknum yfir, síðan ostinum og kryddið að lokum. Bakið svo pizzuna í 180°c heitum ofni í 10-15 mínútur, eða þar til osturinn er bráðnaður og fallega gylltur.

Að sjálfsögðu er hægt að nota annað álegg, það fer bara eftir smekk. Ég prófaði að nota kjöt einu sinni með ostinum en mér fannst það ekki jafn gott enda fær maður þá svo lítinn ost.

Til að vera viss um að þú sért að fá 300 g af grænmeti myndi ég mæla með að borða 100 – 150 grömm aukalega enda hverfa sveppirnir og tómatarnir nánast við eldun.

Notkun:
Brauð xx
Ávöxtur x (brauðið)
Extra 2 x
Extra 1 olía
Feitur ostur xx

12 svör to "Kvöldmatur"

vá þetta lítur rosa vel út :o )

hvað er passata aftur??

Passata eru maukaðir tómatar. :) Svona eins og pastasósa, nema án krydds. :)

Ég nota alltaf magran ost 11% þá er hægt að hafa hálfan kjötskamt með og notað 75 gr af osti samt … ummm

Já, mér finnst 11% ostur bara ekki nógu spennandi, hann bráðnar ekki eins vel og þessi feiti, verður eitthvað svo asnó. :)

Hvað með lasagne plöturnar, læturu þær ekki liggja í vatni áður…eða fara þær harðar í mótið með sýrðum rjóma á?

Ég set þær harðar í og þær blotna alveg af kjötsósunni og sýrða rjómanum. Sumar tegundir af plötum þurfa þó að liggja í bleyti en ég held að það heyri til undantekninga nú til dags. Ert þú á danska eða bara áhugasamur um mat? :)

Já ok þetta er danski, ég er bara áhugamaður um mat. Langaði í lasagne á morgunn og googlaði “besta lasagne í heimi” og síðan þín kom fyrst upp ;o)
Svo kemur það í ljós á morgunn eða hinn hvort uppskriftin standi fyrir sínu…læt þig vita ;o)

En annað varðandi meðlæti, besta meðlætisblanda af rótargrænmeti sem ég veit um eru rófur, gulrætur, sætar kartöflur og hvítlaukur smátt saxaður. Allt skorið niður, matarolía yfir og svo bakaði í ofni. Gæti það ekki flokkast sem danski?

Jú, reyndar teljast sætu kartöflurnar sem kolvetni og því má bara fá 100 grömm af þeim. Ég geri mér oft svona rótargrænmeti bakað í ofni, þvílíkt sælgæti. Þar sem þú ert ekkert á danska þá notarðu sömu uppskrift en sleppir bara að vigta. Getur líka notað meira af ost og kjöti, bara eftir smekk. Ég lofa, þetta er hryllilega góð uppskrift. :) Gerði hana oft fyrir daga danska kúrsins.

Glæsó, ég verð að prófa þetta ;o)

Yummo … mig langar í pizzu núna …

datt hingað inn fyrir einhverja algjöra tilviljun:) skemmtileg síða samt og gaman að lesa bloggin, þó ég sé ekki í átaki virkar þetta samt einhvern veginn hvetjandi á mig bara með það það ná sínum markmiðum! (t.d. klára skólann með stæl, ekki slugsa eins og ég er að gera þessa dagana).

Datt samt í hug að benda þér á þar sem systir mín er semivegan (borðar fisk) og mikil áhugamanneskja um mat að gera pizzadeigið sjálf ef þú nennir einhvern daginn. Þá geturðu nefninlega gert spelt deig (nema Jói Fel búi til þannig líka), það er sama og enginn munur og það er mun hollara, ekkert hvítt hveiti!
Og með tortillurnar þínar líka, nota heilhveiti tortillur.

Annars þekki ég ekki nógu vel danska kúrinn en systir mín býr oft til uppskriftir úr allskonar vegan matreiðslubókum nú eða bara bókinni hennar Sollu á grænum kosti og þó ég sé sjálf algjör sukkari og hafi í gegnum tíðina fúlsað við hollustu þá eru margir af þeim réttum geggjaðir.
http://www.modirnattura.is/ hún notar þessa síðu líka mikið, margt magnað þarna!

Nú er ég farin að læra:)

Gangi þér sem allra best!

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

allamalla við Enn á lífi
Oscar Ferrari við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
Gerður við Enn á lífi

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 88,010 hits

a

Sarpur

 

nóvember 2009
M Þ M F F L S
« apr    
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30