Dídí í átaki

Kvöldhádegismatur

Hér fyrir neðan má finna uppskriftir sem teljast sem hádegismatur á danska kúrnum en ég borða þær oftast á kvöldin og svissa því hádegis- og kvöldmat.

Fajitas

2 kjúklingabringur
2 tsk Casa Fiesta Taco seasoning mix
Smá vatn
250 g sveppir í bitur
1 paprika í bitum
1 laukur smátt skorinn
Sýrður rjómi 10%
1 pakki litlar tortillur (u.þ.b. 45 g stykkið)
Taco sósa (hot, medium, mild eftir smekk)

Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið. Kryddið með taco kryddinu og setjið vatn út á pönnuna. Blandið vel og látið malla þar til vatnið er gufað upp og kryddmaukið hjúpar kjúklinginn. Setið kjúklinginn til hliðar og steikið grænmetið. Hitið tortillurnar eftir leiðbeiningum á pakkanum
Nú er komið að samsetningu. Ég smyr venjulega 15 g sýrðan rjóma á kökuna fyrst og set síðan 25 g af taco sósu ofan á. Síðan 50 g kjúkling og 100-150 g steikt grænmeti. Efst set ég síðan 12,5 g sýrðan rjóma. Ég vil, eins og sést, mikinn sýrðan rjóma en það er náttúrulega bara smekksatriði. Ef þú geymdir brauð dagsins og fórnar einum ávexti geturðu fengið tvær svona kökur. Mjög passlegt. :)
Einnig er hægt að nota nautahakk í þennan rétt, mjög gott.

Mexíkósk súpa f. sex

Mexkósk veisla

3 rauðlaukar, mjög smátt skornir
6 hvítlauksgeirar, pressaðir
2 msk olía
3 dósir niðursoðnir tómatar, maukaðir
1 stór teningur kjúklingakraftur (eða 3 litlir eða 3 tsk)
1 stór teningur nautakrafur (eða 3 litlir eða 3 tsk)
3/4 l tómatsafi
Vatn í einni tómatdós
3 tsk kóríander
1/2 – 1 tsk chili duft (eftir smekk)
1/2 – 1 tsk cayenne pipar (eftir smekk)

Hitið olíu í potti og látið lauk malla rólega í nokkrar mínútur eða þangað til hann byrjar að verða mjúkur. Bætið hvítlauk saman við og hrærið áfram í stuttu stund. Passa verður að hvítlaukurinn brúnast ekki því þá verður hann bitur og vondur. Blandið öllum hinum hráefnunum saman við og látið malla með loki í 25-30 mínútur. Hrærið í af og til.

2-3 kjúklingabringur (má sleppa)
1 dós 10% sýrður rjómi, hrærður
1 poki pizzuostur
Nokkrar Doritos Dippas (fyrir þá sem eru ekki á danska)

Skerið kjúklingabringurnar í bite size bita og steikið á pönnu þar til gegnumsteiktir. Vigtið 400 grömm af súpu á hvern disk og 40-60 g af kjúkling þar ofan í. Skreytið hverja súpu með smá sýrðum rjóma (25-50 g) og 25 g pizzaosti. Fyrir þá sem eru ekki á danska er gott að setja nokkrar flögur út í líka.

Sé súpunni skipt í sex skammta er 1 extra kross í hverjum skammti.

Mér finnst súpan eiginlega betri án kjúklingsins og nota ég þá 25 grömm af osti í súpuna og geri mér svo Quesadillas með öðrum 25 g af osti.

Quesadillas fyrir 4 gráðuga

8 litlar tortillur (45 g stykkið)
200 g taco sósa (helst chunky)
1/2 gul paprika
1/2 rauðlaukur
50 g sýrður rjómi (10%)
Pizzaostur

Skerið paprikuna og laukinn mjög smátt og blandið saman við tacó sósuna og sýrða rjómann. Hitið eina tortilla köku á þurri pönnu og stráið 12,5 grömmum af osti yfir hana. Látið lok yfir pönnuna og leyfið ostinum að bráðna. Setjið svo u.þ.b. 1/8 af taco blöndunni á annan helminginn og brjótið kökuna saman. Leyfið kökunni að hitna í smá tíma
og setjið svo á disk. Endurtakið 8 sinnum. Skerið hverja köku í 3 þríhyrninga og berið fram.

Hverjir sex bitar eru þá 25 g af osti, 50 g taco sósa (1 extra kross), 1/4 mjólkurskammtur og smá grænmeti. Þetta eru 90 grömm af brauði svo þið verið að geyma allan brauðskammtinn og selja einn ávöxt.

Besta lasagne í heimi!

Fyrir þrjá
400 g nautahakk
2 rauðar paprikur
2 meðalstórir rauðlaukar
1/2 kúrbítur
4-6 meðalstórar gulrætur
1 1/2 pakki sveppir
2 krukkur pastasósa (150 g á mann) (ég nota Fertilla pizza sauce)
9 lasagneplötur (ég nota Rapunzel vollkorn plötur í grænu pökkunum)
2 dósir 5% sýrður rjómi (150 g á mann) (frá Mjólku)
75 g pizza ostur

Skerið grænmetið í frekar litla bita, sérstaklega gulræturnar. Steikið hakkið og setjið í sigti, leyfið fitunni að leka af því meðan þið steikið grænmetið. Gott er að steikja grænmetið í nokkrum hollum því þetta er rosalega mikið og það vill verða blautt og leiðinlegt ef maður steikir allt í einu.
Vigtið svo 60 g hakk, 300 g grænmeti og 150 g sósu í skál, skellið á pönnuna og leyfið að hitna í gegn.
Takið eina lasagne plötu og smyrjið með 1/3 af sýrða rjómanum (50 g) á plötuna og leggið hana svo í mótið, setjið helminginn af hakkblöndunni ofan á, endurtakið með næsta lag. Setjið svo síðustu plötuna efst, smyrjið með restina af sýrða rjómanum (50 g) og dreifið 25 g af pizzaosti yfir.
Rífið smá álpappír og búið til “vegg” úr honum til að hafa milli skammtanna svo þið séuð viss um að fá bara það sem þið vigtuðuð.
Vigtið, hitið og hlaðið næsta skammt og svo þann þriðja.

Setjið í forhitaðan 180° heitan ofn og bakið í 35 mínútur.

Þetta tekur langan tíma að gera en mér finnst það vel þess virði enda alveg hrottalega gott. :) Best er að svissa hádegis og kvöldmat og borða þetta um kvöld.

Pizza extraordinaire

Fyrir tvo

Pizza

Ég nenni ekki að gera mitt eigið deig og kaupi því Jóa Fel pizzadeig en það er mjög gott. Það fæst í Hagkaupum og kemur sem deigklessa í svörtu plastformi.

1 box Jóa Fel pizzadeig eða sambærilegt
1 – 2 tsk ólífuolía
200 – 300 g heimatilbúin pizzasósa eða búðarkeypt, t.d. Hunt’s
250 g sveppir í sneiðum
1/2 rauð paprika í sneiðum
Nokkrir rauðlaukshringir
1 tómatur í sneiðum
1 poki pizza ostur (23%)
Gott krydd, t.d. lífrænt pizzakrydd frá Lebensbaum eða Heitt pizzakrydd frá Pottagöldrum
1 hvítlauksrif

Fletjið degið út frekar þunnt á ofnplötu, gott er að hafa bökunarpappír undir. Penslið deigið með ólífuolíunni, líka kantana. Setjið deigið inn í forhitaðan 160°c heitan ofn og bakið í 5 mínútur. Fylgist vel með deiginu því það myndast stórar loftbólur sem þarf að stinga á og lofttæma.
Þegar deigið er bakað takið þá plötuna út og skerið aðeins minna en 1/3 af botninum á mann, vigtið til að vera örugg um að botninn sé 90 grömm. Dreifið u.þ.b. 100 g af pizzasósunni yfir pizzuna. Ekki er gott að reyna að búa til kanta því þeir verða bara harðir og óætir, dreifið því sósunni jafnt yfir og alveg út á enda. Dreifið grænmetinu og hvítlauknum yfir, síðan ostinum og kryddið að lokum. Bakið svo pizzuna í 180°c heitum ofni í 10-15 mínútur, eða þar til osturinn er bráðnaður og fallega gylltur.

Að sjálfsögðu er hægt að nota annað álegg, það fer bara eftir smekk. Ég prófaði að nota kjöt einu sinni með ostinum en mér fannst það ekki jafn gott enda fær maður þá svo lítinn ost.

Til að vera viss um að þú sért að fá 300 g af grænmeti myndi ég mæla með að borða 100 – 150 grömm aukalega enda hverfa sveppirnir og tómatarnir nánast við eldun.

Notkun:
Brauð xx
Ávöxtur x (brauðið)
Extra 2 x
Extra 1 olía
Feitur ostur xx

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

allamalla við Enn á lífi
Oscar Ferrari við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
Gerður við Enn á lífi

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 88,010 hits

a

Sarpur

 

nóvember 2009
M Þ M F F L S
« apr    
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30