4 meðalstór epli
1 tsk kanill
120 g hveiti
120 g undanrennuduft
120 g létt majónes
1 tsk sæta + smá
Flysjið eplin og skerið í bita. Setjið þau í eldfast mót, dash’ið smá sætu yfir og dreifið síðan 1 tsk af kanil yfir þau.
Blandið saman undanrennudufti, hveiti, létt majó og sætu í skál og dreifið síðan deiginu yfir eplin.
Bakið í forhituðum 180°c heitum ofni í 40 mínútur. Gott er að setja álpappír yfir seinustu 10-15 mínúturnar svo deigið brenni ekki. Borðið heitt.
Kökunni er skipt í 8 jafn skammta. Einn skammtur er þá:
Extra 2 xxx Fita x 1/2 Ávöxtur 1/2
Þetta er rosalega gott svona eitt og sér en algjör draumur með vanilluís og vel boðlegt fyrir fólk sem er ekki á DDV.
Nýleg ummæli