Dídí í átaki

Hádegismatur

Ceviche

Ceviche

150-200 g hrár hörpudiskur
150-200 g hráar skellausar risarækjur
1 rauðlaukur
1/2 meðalstór rauður chili pipar
3-4 msk söxuð steinselja
1-2 límónur

Afþýðið fiskinn alveg og þerrið hann svo. Setjið í skál og rífið börk af límónunum yfir. Passið ykkur á að taka bara græna hlutann, alls ekki fara inn í þetta hvíta því það er beiskt og vont. Gott er að nota lemon zester (sjá hér) eða lítið og fínt rifjárn. Kreistið safann úr límónunum yfir fiskinn.
Því næst er rauðlaukurinn, chili piparinn og steinseljan söxuð smátt og blandað við. Skálinni er lokað, t.d. með plastfilmu og hún síðan sett inn í ísskáp. Látið réttinn malla á límónusafanum í 1-2 tíma og hrærið reglulega í, t.d. á 15 mínútu fresti.

Rosalega gott að bera þetta fram með löngu baguette brauði sem er búið að skera í mjóar sneiðar. Best er að skera smá á ská til að fá sem stærstan flöt á brauðið. Hægt er að fá 60 g af brauði ef morgunbrauðið er geymt. Það er algjör draumur að bera þetta fram sem smárétt eða forrétt með góðu hvítvíni en ekki á meðan maður er á danska. ;)

Túnfisksalat

Túnfisksalat

40-60 g túnfiskur í vatni
20 g rauðlaukur (eða venjulegur)
30 g létt majónes
1 harðsoðið egg

Skerið laukinn mjög smátt og setið hann ásamt túnfisknum og majónesinu í skál. Skerið eggið í litla bita og bætið út í. Hrærið saman og voilà! Tilbúið!
Njótið salatsins með 60 g af ristuðu brauði (geyma morgunbrauðið) eða 30 g af hrökkbrauði.
Munið að borða 280 g af grænmeti fyrst!

Rækjusalat

40-60 g soðnar rækjur
1 egg
30 g létt majó
Sítrónupipar

Blandið saman rækjum, eggi og majó og kryddið með smá sítrónupipar. Borðið með 30-60 grömmum af brauði eða hrökkbrauði.

Roast Beef einloka

Roast beef einloka

80 g roast beef
30 g brauð
25 g sýrður rjómi

Ristið brauðið og smyrjið sýrða rjómanum á það.
Þerrið roast beef sneiðarnar í eldhúspappír og setjið síðan á einlokuna.
Njótið!
Muna að borða 300 g af grænmeti fyrst!

Kjúklingavefja með kotasælu

45 – 60 g tortilla
50 g kotasæla
60 g foreldaðar kjúklingabringur
5 – 10 g dijon hunangssinnep (eftir smekk)
Nokkrar sneiðir sveppir
Nokkrar ræmur rauð paprika
Nokkrir rauðlaukshringir
Leggið tortilluna á disk og smyrjið 5 – 10 g af sinnepi á hana. Setjið þar ofan á kotasæluna, í rönd eftir miðjunni. Þar næst fer kjúklingurinn og að lokum grænmetið. Svo lokiði tortillunni og hitið hana í 1 – 2 mínútur í örbylgjuofni.

Eggjabrauð

2 egg
salt
pipar
chili duft
60 g brauð
1/2 tsk olía

Brjótið eggin í víða skál eða djúpan disk og þeytið saman með gaffli. Kryddið eftir smekk. Dýfið brauðunum ofan í og leyfið þeim að draga í sig eggin frá báðum hliðum.
Hitið olíuna á pönnu, ekki hafa á hæstu stillingu, næsthæsta er fínt. Steikið brauðin á báðum hliðum og njótið!
Ekki gleyma að borða 300 g af grænmeti með, steikt grænmeti fer vel með eggjabrauðinu. :)

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

allamalla við Enn á lífi
Oscar Ferrari við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
Gerður við Enn á lífi

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 88,010 hits

a

Sarpur

 

nóvember 2009
M Þ M F F L S
« apr    
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30