150 g frosin jarðaber
Smá sletta vatn
Fljótandi sætuefni eftir smekk (þarf lítið)
Setið botnfylli af vatni, jarðaberin og sætuna í pott og hitið. Látið sjóða með lokið yfir á meðalstraum í 2-3 mínútur eða þar til berin eru orðin mjúk. Kremjið berin með sleif eða pískara og sjóðið svo lengur eða allt þar til blandan er orðin að þykku mauki. Látið kólna í 5-10 mínútur og berið svo fram með til dæmis DDV súkkulaðiís eða Dr Oetker súkkulaðibúðing.
5 – 6 tsk Dr Oetker sykurlaust súkkulaðibúðingsduft
3 dl undanrenna
Tæp teskeið sæta
Búðingsduftið, undanrennan og sætan hituð saman í potti. Látið malla í mínútu á meðan það er hrært duglega í. Potturinn settur í vatnbað til að kæla búðinginn pínu áður en hann er settur í glas. Nokkrum mínútum síðar er honum skellti í glas og inn í ísskáp með plastfilmu yfir. Láta kólna í tvo tíma. Gott með jarðarberjasósunni hér að ofan.

150 g frosin jarðaber
1/2 banani
2-3 dl fjörmjólk
Setjið helminginn af jarðaberjunum og 1 dl fjörmjólk í blandara og mixið vel. Bætið svo restinni af jarðaberjunum og öðrum desilítra fjörmjólk útí og blandið. Setjið að lokum bananann, í bitum, og restina af mjólkinni (eftir þörfum) í blandarann og blandið þar til kekkjalaust.
Hellið í hátt glas og drekkið, helst með röri!

200 g Europes best berjablanda (eða sambærilegt)
125 g DDV vanilluís
2 dl fjörmjólk
Fljótandi sætuefni (ef vill)
Setjið helminginn af berjablöndunni og 1 dl af fjörmjólk í blandara og blandið. Setjið svo restina af berjunum og restina af mjólkinni og blandið þar til kekkjalaust. Setjið svo ísinn útí í nokkrum bitum og blandið þar til silkimjúkt. Smakkið til með sætuefni.
Hellið í hátt glas og drekkið með röri!
2 1/2 dl lífræn ab-mjólk (eða það sem þú átt eftir)
Smá sæta
Smá kanill
Hella í djúpan disk og njóta!
Mjög seðjandi út af kanilnum.
300 g jarðarber
1 lífræn bíóbú jógúrt (2 dl)
1/2 vanillustöng
Smá fljótandi sæta
Skerið vanillustöngina endilanga og skafið vanillukornin úr henni, blandið þeim saman við jógúrtina. Hrærið vel svo ekki verði eftir vanillukekkir. Bætið við sætu eftir smekk. Hreinsið toppinn af jarðarberjunum og skerið þau í tvennt.
Vigtið 150 g á mann í skál og hellið svo u.þ.b. 85 g af jógúrtblöndunni yfir berin. Njótið!
Notkun: 1 ávöxtur 2 x mjólkurvörur
1 epli (hart og gott, ekki trénað)
Kanill
DDV vanilluís
Skerið eitt epli niður í litlar sneiðar og raðið í botninn á eldföstu móti. Dreifið góðum slatta af kanil yfir. Setjið inn í ofn í 30 mínútur við 180°c hita eða þar til eplin verða mjúk. Berið fram heitt með vanilluís. Sjúklega gott!
Ef þér finnst eplin of súr er gott að dreifa örlitlu sætuefni yfir þau áður en þau eru bökuð.
Nýleg ummæli