120-140 gramma hamborgari (fæst í kjötborðum stórverslananna)
1 hamborgarabrauð
Spælt egg eða 25 g feitur ostur
150 g sveppir
Kál (kínakál, lambhagasalat..)
Nokkrar ræmur rauð paprika
Nokkrir rauðlaukshringir
4 agúrkusneiðar
3 tsk tómatsósa
Skerið sveppina í sneiðar og steikið, setjið síðan til hliðar í skál. Steikið hamborgarann eftir smekk, alls ekki ofsteikja hann. Leggið hann á pappírsþurrku til að ná yfirborðsfitunni af honum. Spælið eggið. Hitið hamborgarabrauðið í örbylgjuofni í 15 sekúndur og vigtið 60 grömm, oftast þarf bara að rífa smá af. Smyrjið brauðin með tómatsósunni og setjið síðan steiktu sveppina á botninn. Þar ofan á fer hamborgarinn, síðan grænmetið og loks eggið. Lokið síðan og þrýstið niður til að allt fari ekki út um allt.
Ef þið kjósið frekar ost þá er hann hitaður ofan á borgaranum á pönnunni.
Ég næ venjulega um 100 grömmum af grænmeti í borgarann og þá er gott að grípa í konfekttómata eða hráa rófu til að narta í meðfram. Einnig má ekki gleyma að borða ávöxt þar sem þetta er brunch.
Mæli með þessu á lötum sunnudegi, frábær leið til að byrja daginn.
60 g brauð
2 egg
25 g feitur ostur
Örlítil olía
Góð krydd, t.d. mexíkósk eða ítölsk blanda frá pottagöldrum.
Brjótið eggin í víða skál eða djúpan disk og þeytið saman með gaffli. Kryddið eftir smekk. Dýfið brauðunum ofan í og leyfið þeim að draga í sig eggin frá báðum hliðum.
Hitið olíuna á pönnu, ekki hafa á hæstu stillingu, næsthæsta er fínt. Steikið brauðin á báðum hliðum og setjið að lokum ost á annað brauðið. Leggið brauðin saman og leyfið ostinum að bráðna. Gott að drekka appelsínusafa með og svo má ekki gleyma grænmetinu!
120 g fiskur (t.d. ýsa)
75 g létt smurostur, grænmetis eða sveppa
75 g 12% philadelfia ostur
Paprika
Laukur
Sveppir
Kúrbítur
Skerið grænmetið í bita. Leggið fiskinn í botninn á eldföstu móti. Hrærið saman ostunum (verður innan við 11% þegar það er blandað saman) og smyrjið yfir fiskinn. Steikið grænmetið létt á pönnu og dreifið yfir ostablönduna.
Bakið í 30 mínútur við 180°c heitan ofn. Ekki gleyma ávexti og að bæta upp á grænmetisskammtinn ef þess þarf!
Nýleg ummæli