Ég er 24 ára stelpa sem því miður er of þung. Þetta er átaksbloggið mitt. Þegar ég byrjaði var ég 150 kíló en ég stefni að sjálfsögðu á kjörþyngd sem er milli 65 og 80 kíló.
Fyrstu 10 mánuðina og 37 kílóin var ég á danska kúrnum en 20. maí 2008 tók ég þá ákvörðun að fara mína eigin leið og tel ég núna hitaeiningar ásamt því að fylgja grunnreglum sykurstuðulsmataræðis en það gengur út á að halda blóðsykrinum jöfnum.
Sæl Dídí og til hamingju með árangurinn. Síðan þín er mjög kvetjandi og ég held ég sé bara tilbúin aftur í danska kúrinn enn og aftur
. Mig langaði að spyrja þig þar sem þú ert svo mikill reynslubolti í DDV: Til að ná árangri þarf maður að mæta á reglulega fundi einu sinni í viku? Eða getur maður gert þetta einn heima með stuðning maka t.d. og eiga matreiðslubækurnar og vita hvernig þetta funkerar?
Ég er tvisvar búin að byrja í danska kúrnum en renn alltaf á rassinn. Það er eins og ég geti ekki staðið mig 100 % í þessu nema í tvær vikur. Ég þori varla að mæta aftur í Garðabæinn og skrá mig í þriðja sinn ![]()
Gangi þér vel.
Elísabet
Mér finnst þetta frábært hjá þér
rambaði inn á síðuna þína þar sem ég er líka með wordpress.
Haltu þessu áfram, ég er mjög stolt af þér.
kveðja ókunnug
6. júlí, 2007 kl. 22:36
hæ hæ … gaman að heyra í þér , endilega hafðu samband ef eitthvað er , ég er 25 ára, og er eins og er um 138 kíló en hef verið þyngst um 148 kíló .. þannig að bara go girl !!! alltaf gott að finna aðila sem´er á svipuðum slóðum og maður sjálfur