Að prófa eitthvað nýtt

Mér finnst ég hafa sagt þetta svo oft, en það hættir samt ekki. Ég er alltaf að prófa eitthvað nýtt, nýja lausn, nýtt plan, nýja megrun, nýjan lífstíl. Þessa dagana er ég að prófa nýtt – en það er engin grundvallar-lífsbreytandi nýjung. Nei – markmiðið er lítið og létt.

Ekki borða nammi, kökur, ís, popp, snakk, kökur og álíka til 5. nóvember

Sumum finnst þetta kannski kjánalegt, en ég veit að þetta virkar. Ég veit hins vegar að það að ætla að umturna lífi mínu á einum sólarhring, byrja í ræktinni, hætta að borða allt óhollt og jafnvel hætta í gosi er ekki að virka. Ég ætla því að byrja smátt.

Núna er ég á degi 3 í nammibindindi og það gengur vel. Þetta skiptið verður nammibindindið stutt, eingöngu fram að þeim degi sem ég held útskriftarveisluna mína. Ef gengur vel þá held ég áfram eftir það og tek jafnvel stefnuna á ekkert nammi fram að jólum.

Eftir áramót ætla ég svo að fara í Heilsuborg í Heilsulausn 3 og taka fullt ársprógramm, þá bætist inn hreyfing og eitthvað strangara mataræði. Þá verð ég hins vegar ekki á núllpunkti.

Ég hef prófað kúrana, prófað “nýjan lífstíl” (sem oftast er kúr í dulbúningi) og það virkar ekki. Þetta kemur alltaf aftur. Ég vildi guðsfegin vera laus við þessar fitupælingar að eilífu. Sjáum hvort það virkar.

Langtímamarkmið mitt er að komast niður í “ofeldi” í BMI stuðlinum. Ég ætla að miða við að ná því fyrir þrítugsafmæli mitt – eftir tæplega tvö ár.

3 thoughts on “Að prófa eitthvað nýtt

  1. Heiða says:

    Gaman að sjá að þú ert byrjuð að blogga aftur :) Þetta er langtímaverkefni hjá okkur og maður verður líka að minna sig á að þótt maður geri mistök að þá lærir maður helling af þeim. Þótt einhver kíló hafi komið aftur þá ertu ekki á sama stað og þegar þú byrjaðir 2007. Þú ert reynslunni ríkari og veist hvað þú getur.

  2. Dídí says:

    Já maður er svo sannarlega reynslunni ríkari! :)

  3. Sara Heimis says:

    ég þarf að fara að taka þig til fyrirmyndar Védís :) svo dugleg alltaf :)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s