Feitust í heimi

Reglulega kemur upp í umræðunni að við sem þjóð séum orðin feitari en hinir og þessir eða þyngri en hinir og þessir. Gjarnan koma þá fram spekúlantar sem segja að eitthvað þurfi að gera í þessu. En aldrei gerist neitt.

Ég veit ekki betur en að eina opinbera prógrammið niðurgreitt af ríkinu sé að fara í offituprógramm á Reykjalundi og í aðgerð. Það er hægt að gera betur.

Ég sé fyrir mér að sett yrði á laggirnar deild á Landsspítalanum sem tæki við fólki með BMI yfir viss mörk. Maður kæmist þangað með tilvísun frá lækni. Þar hitti maður lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfa, einkaþjálfa jafnvel og næringarráðgjafa. Þar væri sett saman einstaklingsmiðað margra vikna prógramm með eftirfylgni.

Það er ekki nóg að segja að feita fólkið sé ógeðslegt og eigi að drífa sig í megrun. Höfum við ekki lært af reynslunni ennþá? Við erum búin að vera að TALA um þetta í mörg ár. Nú er kominn tími til að GERA eitthvað!

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s