Schrödinger’s fat

Árið 2007 byrjaði ég í megrun sem gekk svona líka ljómandi vel. Ég náði af mér um 45 kílóum og leið betur en aldrei fyrr. Síðan þá hafa mörg þeirra komið til baka en aldrei alveg öll.

Það getur verið erfitt að sætta sig við að maður hafi aftur misst stjórn á sér og borðað öll þessi kíló aftur.

Ég hef á stundum upplifað andartök sem mætti kenna við köttinn hans Schrödinger. Eitt sinn eftir að 20-25 kíló voru komin á mig aftur hitti ég stelpu sem ég hitti örsjaldan. Hana hafði ég seinast séð þegar ég var í mínu þyngsta ástandi. Fyrir henni hafði ég lagt gífurlega af og hún hrósaði mér fyrir hvað ég leit vel út. Ég gat ekki tekið við hrósinu því allt sem ég vildi horfa á var að ég hafði borðað aftur á mig 20-25 kíló. Að sama skapi hef ég forðast vissa staði þar sem ég vil ekki hitta fólk sem sá mig í mínu grannasta formi og hrósaði mér þá, því alveg eins og með köttinn hans Schrödinger þá er þeir möguleikar fyrir hendi ég sé bæði feit og mjó þangað til að þetta fólk sér mig!

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s