Posted by: Dídí on: 16. apríl, 2009
Ég ku vera enn á lífi en gírinn, hann er fyrir löngu týndur og ég bara man ekki hvar ég setti hann!
Er bara að þjösnast við að koma mér í gegnum fullt háskólanám á hálfum orkutanki og allt sem ekki er lærdómur hefur setið á hakanum, nema reyndar félagslífið, hef stundað það grimmt!
Ég er samt alltaf að leita að þessum gír, vonandi fer hann að koma í leitirnar.
Gott að heyra af þér aftur, er einmitt alveg búin að týna mínu gír líka… svona er þetta stundum.
Gangi þér vel!
Dídí mín hvar ertu?
18. apríl, 2009 kl. 0:35
Hæ hæ Dídí mín duglega stelpa!!
Endilega kíktu inn á síðuna mína og skoðaðu hvað ég hef verið að bralla undanfarna daga – ég fékk hvatningarbombu frá algjörlega ókunnri konu (viðtal í Vikunni!!) – og komst looooksins í gírinn – eftir margra mánaða orkuleysi og barning við að komast aftur af stað!!!
Go girl!!!