Dídí í átaki

Vigtun sextíu og tvö

Posted by: Dídí on: 19. september, 2008

Vúhú! Niður um 400 grömm. :) Það eru 13 vikur til jóla og nái ég að léttast um 500 grömm á viku þangað til eru það sex og hálft kíló, það myndi fleyta mér undir 100 kílóin og það er stefnan. :) Auðvitað væri 10 kíló skemmtilegra en samt engin pressa, mitt helsta takmark þessa dagana er að komast undir 100! Eins og staðan er núna vantar mig 5,3 upp á að komast í 99,9 en 5,5 til að komast í 99,7 en þá verð ég búin að léttast um 50 kíló samtals!

Annars er allt á fullu hjá mér, ég er komin í nemendafélagið Mími og orðin nýnemafulltrúi þar, í kvöld er Vísó, á morgun er Haustferð Mímis, á sunnudaginn er það lærdómur og it’s goes on and on!

Er að fara í búðarleiðangur núna, langar að finna mér pils fyrir helgina, er nánast fatalaus, búin að fara með marga svarta poka af of stórum fötum á Sorpu. :)

Later beibs!

6 svör to "Vigtun sextíu og tvö"

Glæsilegt og greinilega meira en nóg að gera hjá þér :)
Svo gaman að fara með stóru fötin í sorpu !

Þú ferð örugglega létt með að rúlla þér niður í tveggja stafa töluna og ná 50 kílóunum!! 50 kíló – það er rosa tala!! Hvernig heldurðu að það væri að mæta í ræktina með 50 kíló hengd utan á þig í dag??

Mikið er gaman hvað þér gengur vel:) Ert svo dugle:):)

Þú verður komin niður fyrir 100 áður en þú veist af;)

oggislega flott hjá þér!!!!!!

vá þú nærð því fyrir jól
það er engin smá tala!
mér finnst að það mætti flagga fyrir þér þá!!
þú er ÆÐI

Ó mæ god! 50 kg. er ekkert smáræði! Þú ert svo dugleg! Gengurðu ekki um með höfuðið reigt aftur, syngjandi “I am the champion” hehehe.

Ég er sjálf að byrja, og þú ert mér sannarlega innblástur, hef verið að lesa bloggið þitt og verð alltaf staðráðnari í að klára þetta í hvert skipti sem ég kíki hérna við. Ef þú gætir hugsað þér að gefa mér aðgang að myndasíðunni þinni, þá væri það vel þegið =o)

Mikið svakalega ertu dugleg stelpa. 50 kg er bara eins og eitt stykki fullorðin nett manneskja. Það er sko heill hellingur ;D Til hamingju með þetta og rétt bráðum verðurðu komin í tveggja stafa tölu. Glæsilegt :D

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

allamalla við Enn á lífi
Oscar Ferrari við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
Gerður við Enn á lífi

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 87,967 hits

a

Sarpur

 

september 2008
M Þ M F F L S
« ágú   okt »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930