Posted by: Dídí on: 11. september, 2008
Jæja, það fóru 100 grömm þessa vikuna! Mér finnst það bara fínt enda verið að borða kringum 1700 hitaeiningar á dag í stað 1200-1500 eins og ég ætti að gera til að léttast sem best. Er að trappa mig niður og held að mér gangi bara vel.
Stefnan er tekin á góða tölu í næstu viku og þá meina ég 500 grömm plús.
Vonandi næ ég mér undir 100 fyrir jól, það væri frábært.
Jæja kids, blogga meira seinna! Vona að þið hafið ekki misst trúna á mér.
Engin hætta á að ég missi trúna á þér
Kíki annað slagið við og dáist að dugnaði þínum … er að leita að þessum krafti hjá sjálfri mér og þú gefur mér sko byr undir báða vængi til að trúa þí að þetta sé hægt =)
Gangi þér vel og góða helgi
Til lukku með léttinginn, léttingur er léttingur og meðan það er þannig er allt gott!!
Sæl ég er mætt aftur og nú skal þetta takast hjá mér. Endilega haltu áfram að peppa mig áfram. 14 vikur í jólin og nú kemur þetta…..
Gangi þér vel.
ég er rosalega stolt af þér……
bkv bolla
11. september, 2008 kl. 14:46
hehe 100g líka hér
en áfram höldum við, hef sko ekki misst trúna á þér!