Posted by: Dídí on: 5. september, 2008
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld. Hraðar sérhvern dag, hraðar sérhvert kvöld!
Allavega, ég er byrjuð í skólanum, komin í Háskólakórinn og kominn með vinnu með skóla. S.s. nóg að gera!!
Mataræðið hefur setið á hakanum og satt best að segja hef ég verið í át”frensí” síðan ég kom úr bústaðnum!! Var mjög góð og taldi samviskusamlega hitaeiningar meðan ég var þar en síðan ég kom heim hefur algjört nennuleysi tekið yfir! Ég er að aðlagast breytingum og núna er mataræðið að kikka inn aftur. Ekki seinna vænna því ég þyngdist um 700 grömm þessa vikuna og er því komin í 105,7 kíló!!!! Ég er enn léttari en ég var þegar sumarið hófst og það er ég þakklát fyrir en nú verð ég að stíga á bremsurnar.
En ég hef ekki tíma í lengra blogg, þarf að þjóta í nýju vinnuna og svo nýnemadjamm í kvöld.
Já já við eigum okkur allar ups & downs vigtin verður vonandi í down gírnum næst ![]()
Gangi þér vel!
Ég hef svo sannarlega sýnt það og sannað í ár að það getur verið erfitt að koma sér í gírinn. En mér sýnist þú samt vera á réttri leið
5. september, 2008 kl. 14:47
Glæsilegt hjá þér eins og vanalega
Finnst 700 gr nú ekki mikið m.v. át”frensí”
Góða skemmtun í kvöld!