Dídí í átaki

Vigtun fimmtíu og tvö

Posted by: Dídí on: 1. júlí, 2008

:? Ég vigtaði mig seinast á fimmtudegi af því ég hef ákveðið að vigta mínu á frjálsum dögum í sumar, þegar ég er búin að vera í frí í svolítinn tíma svo bjúgurinn verði búinn að renna. Eníveis, ég vigtaði mig því aftur í morgun, 5 dögum seinna og hafði ég þá misst 1,4 kg!! :? Ég vona að ég sé ekki að svelta mig! Hef ekkert verið að telja hitaeiningar, hef bara ekki orku í mikla hugsun þegar ég er ekki að vinna! Eftir 12,5 tíma vakt langar manni ekki beint að fara að pæla mikið. ;)

En allavega, þetta þýðir að ég hef misst í heildina 44,9 kíló á 52 vikum en það er víst slétt ár. :) Meðaltalið þetta árið hefur því verið 863 grömm á viku! :D

Nú á ég minna en 30 kíló eftir, hugsa sér!

Þetta ár hefur verið viðburðaríkt og ég held að það næsta verði ekki síður viðburðaríkt. :)


14 svör to "Vigtun fimmtíu og tvö"

Þetta er glæsilegt! :) Ég efast um að þú sért að svelta þig, sérstaklega ef þér finnst þú vera að borða nægju þína í hvert mál. Þú verður örugglega komin í 75 kg snemma á næsta ári með þessu áframhaldi. :)

Þú ert snillingur kona, til hamingju með þennan frábæra árangur.

Þú er bara á blússandi siglingu kona! Glæsilegt hjá þér! Þú verður komin í kjörþyngd áður en þú veist af, þú ert svo dugleg.

Frábært hjá þér eins og alltaf :)

Jiiiii Védís! Þetta er frábært!! Segi eins og Bjarni, efast um að þú sért að svelta þig ef þú ert að borða nægju þína:) finnst þetta svo frábært og maður er bara mega stolltur:D Hlakka til að sjá þig eftir sumarið og maður á örugglega ekki einu sinni eftir að þekkja þig híhí:)
Keep up the good work skvís:D:D

Hjartanlega til hamingju með þetta stórgóða ár með frábærum árangri – allt þér sjálfri að þakka :) Ég er innilega sannfærð um að það næsta verður jafn frábært. Knús og kreist :)

Geggjað skvís sit hér með þvílíkan sæluhroll fyrir þín hönd!!!!!

Vá frábær árangur hjá þér!! Ég er ekki í nokkrum vafa um að þú verðir komin í kjörþyngd eftir ekki mjög langan tíma!!! Frábært og til lukku með árið og léttinginn! :)

Þú ert nú meiri dugnaðarforkurinn. Þegar við byrjuðum í ágúst í fyrra þá varst þú 33 kílóum þyngri en ég og nú ertu bara 3 kílóum þyngri – ég held ég verði að fara að taka mér tak því þú ert á hraðri siglingu niður í tveggja stafa tölu – það er frábær hvatning að sjá þennan árangur hjá þér.
Til hamingju með þetta.

Ekkert smá góðurur árangur hjá þér, til hamingju með þetta.
Væri líka ef ég mætti til í að fá pass á myndirnar hjá þér til að sjá muninn :p

Sæl rakst á síðuna þína og það er ekkert smá gaman að sjá hvað þér hefur gengið vel!!! þarf sjálf að taka af mér um 60kg og er hjá einkaþjálfara og að passa vel uppá hvað ég borða :O) sem reynist erfitt stundum!! :O) Væri gaman að fá að sjá myndirnar hjá þér ef þú værir til i að sýna mér þær og sjá muninn!!!
Kv. Smjattpatta

Þú ert ótrúleg, til hamingju :) Það er búið að vera svo gaman að fylgjast með þér. Þú hefur gert þetta svo flott, jafnt og þétt og af þvílíkri þrautseigju og jákvæðni :) Gangi þér vel áfram!
ps…las ég einhvern tímann hjá þér að þú tækir inn eplaedik á hverjum degi? Gerir þú það enn og hvað tekur þú mikið? Tekur þú inn eitthvað fleira hjálparstöff sem þú hefur ofurtrú á? Ég hef prófað birkisafa og birkite sem mér finnst mjög þvaglosandi. Svo langar mig að spurja þig hvort þú sért mikið í gosinu…eða nærðu að halda þér frá því? Ég hef verið í klónum á Pepsi max og held að það sé að gefa mér óttalega þembu í bumbuna og er að reyna að venja mig af því :)

Jelly og Smjattpatta, skal reyna að komast í að senda lykilorð sem fyrst. :)

Bjorgthor, takk fyrir. :) Já, ég drekk enn eplaedik á hverjum degi og tek trefjar, mér finnst það hjálpa mikið, jafnar blóðsykurinn og þá er brennslan jafnari. Það er eins vatnslosandi. Ég tek alltaf króm og picolinat blöndu en það á að draga úr sykurþörf. Ég tek líka silymarin sem eg mjólkurþistill, hann hjálpar lifrarstarfsemi, ég tek hann beggja blands vegna þessa sjúkdóms míns sem virðist skerða lifrarstarfsemi og líka af því hann hjálpar örugglega lifrinni að brjóta niður fitu.

Ég drekk gos og mikið af því, skammast mín ekkert fyrir það. En ef þú heldur að það fari illa í þig þá um að gera að reyna að sleppa því. :)

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,859 hits

a

Sarpur

 

júlí 2008
M Þ M F F L S
« jún   ágú »
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031