Dídí í átaki

Vigtun fimmtíu og eitt

Posted by: Dídí on: 26. júní, 2008

Jæja! Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið fóru 600 grömm! Ég hugsa að allar stöðurnar og löbbin í vinnunni hafi unnið með mér. Eins er ég tvisvar búin að fara í sund og synda 250 m annað skiptið og 500 m það seinna.

Eins þá hef ég ekkert sleppt mér completely, alveg látið nammið í friði til dæmis. Þarf bara að ná að hemja mig með þessar helvítis pizzur!

En allavega, þá er ég 106,2 kíló í dag og vonandi heldur þetta bara áfram að mjakast niður meðan ég er hérna. :)

Ég er þá búin að missa í heildina 43,5 og eftir eru 31,2! Prósentan af heildarþyngd er 30% (sem er ekkert smá mikið) og prósentan af áætluðum þyngdarmissi er 58%. Stuð stuð stuð. :D


9 svör to "Vigtun fimmtíu og eitt"

Vá!! Glæsilegt hjá þér :) Snigillinn rosa flottur, kominn svona langt!!
Og takk fyrir commentið, gaman að heyra frá þér. Var farin að sakna þín ;)

Vá þú ert rosalega dugleg .

Bara frábært hjá þér :) Svakalega flott!

Vá til hamingju. Djöfull góð (afsakið orðbragðið)… ert farin að komast mjög hratt nálægt minni tölu…verður komin í kjörþyngd áður en þú veist af :-)

SNillingur þú hvetur mann áfram þetta er hægt!

Vá! frábær árangur hjá þér til hamingju með allan kg missirinn

Frábært að fylgjast með þér hvað þú ert DUGLEG. Gangi þér vel áfram að settu marki.
Kveðja
Sigurveig

Þú ert alltaf jafn dugleg, las alltaf bloggið þitt á tímabili, er hér með byrjuð aftur, gangi þér áfram rosalega vel! :)

Sæl, ég er 25 ára stelpa sem er búin að berjast við aukakílóin síðan ég var unglingur. Hef einu sinni komist niður í 89 kg sem er ca 10 kg frá þeirri þyngd sem mig langar sárlega að vera í. Ég er núna 120 kg og er við það að gefast upp á sjálfri mér. Það að lesa bloggið þitt hefur aðeins blásið mér byr undir báða vængi. Þú ert búin að missa jafnmikið og mig dreymir um að missa. Gangi þér ótrúlega vel og til hamingju með árangurinn hingað til!

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

allamalla við Enn á lífi
Oscar Ferrari við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
Gerður við Enn á lífi

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 90,892 hits

a

Sarpur

 

júní 2008
M Þ M F F L S
« maí   júl »
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30