Dídí í átaki

Vigtun fjörutíu og níu

Posted by: Dídí on: 11. júní, 2008

Jæja! Ég steig á vigt í morgunsárið og var þá 106,8 kíló! :D Þessi tala þýðir að ég léttist um 1,7 kíló þessa vikuna! Maður fer að pæla hvort ég sé að borða of lítið en nei, ég held ekki. Ég líka þyngdist í seinustu viku og það var BARA VATN. Ég var að sökkva í bjúg svo ég gæti meira að segja hafa lést eitthvað þá. :lol:

Samtalan er þá 42,9 og svona lítur tikki minn út þessa dagana. Er að renna sér niður brekkuna nice and smoothly. ;)


En ég er ekki búin enn! Neinei! Ég fór í vigtun inni í Garðabæ, bara til að tjékka inn hjá þeim, þær hafa örugglega verið farnar að hafa áhyggjur af mér. ;) Samkvæmt þeirra vigt er ég 107,7 kíló um miðjan dag. Sibba var svaka stolt af mér og var nánast orðlaus, hehe. Spurði hvort ég ætlaði að vera á fundi og þegar ég sagði nei þá spurði hún hvort hún mætti ekki monta sig að mér og það var auðvitað sjálfsagt. ;)

Þótt ég sé farin að telja hitaeiningar núna þá er þessi léttingur samt nánast allur danska að þakka. Danski kom mér svona svakalega á sporið og án hans væri ég ekki komin svona langt. :)

Ég fór líka í fitumælingu og var svakalega gaman að sjá hvað kom út úr henni!

. 18.07.07 29.08.07 28.11.07 27.02.08 11.06.08
Þyngd 146,1 139,2 127,9 117,4 107,7
BMR kcal 2266 2199 2091 1990 1887
Fat % 56,1% 55,4% 52,2% 51,1% 46,5%
Fat mass 82,0 77,1 66,8 60,0 50,1
FFM 64,1 62,1 61,1 57,4 57,6
TBW 46,9 45,5 44,7 42,0 42,2

BMR kcal Grunnefnaskipti, efnaskipti í hvíld í kílókaloríum
Fat% Fita í prósentum
Fat mass Fituvefsmassi, fituvefur í kílóum
FFM Líkamsmassi sem ekki er fita
TBW Heildarvatnsmagn í líkamanum

Eins og þið sjáið þá hef ég aðallega misst fitu þessi 10 kílóin, hef í raun bætt á mig vöðvamassa (200 g) og vökva (200 g) og misst 9,9 kíló af pjúra fitu. :) Heildartalan sem ég hef misst er 9,7 kg svo þið sjáið að þetta er meira en 100% fitumissir. ;) Bara gleðilegt sko! Var farin að hafa pínu áhyggjur að ég væri að gera eitthvað vitlaust og farin að ganga á vöðvana en svo virðist ekki vera!

Jæja þá er ég að hugsa um að slútta þessu í bili. Ég mun svo að sjálfsögðu leyfa ykkur að fylgjast með mér fyrir austan enda kemur fartölvan trygga með mér. ;)

10 svör to "Vigtun fjörutíu og níu"

Gleymdi alveg að tala um hvað þetta er flott hjá þér, glæsilegur árangur og innilega til hamingju.
Kv. frá Neskaupstað…

Glæsilegar allar þessar tölur hjá þér :) Hvar færðu svona fitumælingu? Ég var bara bæld með svona raftæki og þar sem allt mitt er á maganum er fituprósentan 6-7 stigum hærri þegar mælt er gegnum hendurnar heldur en ef mælt er í gegnum lappirnar – finnst það ekki mjög áreiðanlegar tölur.

Hálf öfunda þig að eyða sumrinu fyrir austan – mínar rætur eru þar og þar er alltaf gott að vera :)

hahaha – bæld átti að sjálfsögðu að vera MÆLD :)

Þetta er svona rafdæmi líka, hjá íslensku vigtarráðgjöfunum uppi í Garðabæ. :) Hún heitir Tanita og þykir víst mjög góð fitumælingavél samkvæmt netheimildum mínum. ;) Þetta eru náttúrulega ekki nákvæm vísindi en gefur fína yfirsjón. :)

Vá þetta eru ekkert smá flottar niðurstöður hjá þér Dídí! Gaman að sjá þið í gær, gleymdi að segja þér hvað þú vast flott og sommer ;) enn og aftur gangi þér vel í verbúðinni fyrir austan, er ekki alltaf Spánarveður þar??? ;)

Vá hvað þetta er flottur árangur þetta gefur manni búst og sýnir að þetta er hægt gangi þér vel í flutningunum og það verður gaman að halda áfram að fylgjast með. :)

Það er bara yndislegt að lesa þetta hjá þér :) Þú stendur þig svo vel og ég er viss um að þú ert mörgum innblástur sem standa frammi fyrir að þurfa að missa fleiri kíló en þau telja sig ráða við.

Og hugsaðu þér… bara nokkrar vikur í viðbót og þá ertu komin undir 100 kg… og það á rétt um ári! Bara stórglæsilegt!!!

Til hamingju með góðan árangur þessa vikuna. og takk fyrir komment á síðunni – maður blokkar rosalega á það eru fleiri eins og maður sjálfur upp á þyngd að gera, og ótrúlega gaman að lesa svo að aðrir gátu þetta – þá veit maður að maður getur þetta líka.

Ég er ekki hætt, hef bara ekki almennilega komið mér í að skrifa á bloggið, mun byrja á því aftur sem fyrst.

Enn og aftur – til hamingju með rosalega góðan árangur =) Gangi þér vel með framhaldið.

Hæ dugnaðarforkur :)
Ég hef verið algjörlega út úr í þessum átaks-bloggheimi undanfarnar vikur en er núna að taka til hjá mér og setja mig í gírinn aftur. Það er afskaplega hvetjandi að lesa blogg eins og þitt. Takk fyrir mig og ég verð hér eftir daglegur gestur :)
Aðdáunar- og baráttukveðjur

Glæsilegur árangur! Til hamingju með það.

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,859 hits

a

Sarpur

 

júní 2008
M Þ M F F L S
« maí   júl »
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30