Posted by: Dídí on: 10. júní, 2008
Það er mikið að gerast í mínu lífi þessa dagana og hef ég ákveðið að flytja austur í sumar. Ég er hætt í vinnunni hérna, allt í góðu þar og skilningur á mínum aðstæðum.
Ég er búin að fá starf fyrir austan og er bara spennt.
Ég er búin að ganga í svo miklar breytingar á sjálfri mér síðastliðið árið og tel ég þetta næsta skref. Eftir að hafa greinst með sjúkdóm í byrjun seinasta árs tók að létta yfir lund minni, skringilegt já en satt! Allt í einu fór þunglyndi og kvíðatruflanir sem ég hafði glímt við frá barnæsku að dvína. Í kjölfarið á því gat ég farið að takast á við þyngd mína og hef núna náð góðum árangri þar. Nú er komið að næsta skrefi; að skilgreina mig sem einstakling upp á nýtt og kynnast mér aftur.
Ég er stolt af mér þessa dagana því þetta er ekkert auðveld ákvörðun! Eins þá þrátt fyrir erfiða daga hef ég staðið mig nokkuð vel í matarmálum og býst við létting á morgun.
Ég hef ekkert áætlað að slaka mikið á fyrir austan. Ég held áfram að telja hitaeiningar og stefni á að vera milli 1200 – 1800 hitaeiningar, 1500 sem meðaltal yfir vikuna. Eins ætla ég að reyna að fara með vinkonu minni í ræktina og svo er rosa fín sundlaug þarna.
Svo verð ég líka bíllaus þannig að labb fram og til baka mun styrkja fæturna.
Ég kem svo með nýjustu tölur á morgun!
Rosalega er þetta flottur árangur hjá þér vonandi á ég eftir að vera eins dugleg og þú í þessu. Haltu áfram þessu striki
Takk takk fyrir innlitið og hrósið – þú ert svo dugleg sjálf – flott hjá þér að drífa þig austur – ætlarðu samt ekki í háskólann eða???
kv. Ása Dóra
GAngi þér vel í því sem þú tekur þér fyrir hendur dúllan mín.. ferðu austar en ég er ??
Hlakka til að sjá nýjar færslur frá þér í sumar
Jiii það er ekkert smá! Frábært hjá þér:) Verður örugglega rosalega gaman og gott fyrir þig að breyta aðeins um umhverfi:)
En pæling, hvað verður um Bjarna? Verður hann bara einn og yfirgefinn í bænum?
10. júní, 2008 kl. 21:32
Fær maður ekkert að vita hvert austur ???
Kv. Hrönn