Posted by: Dídí on: 4. júní, 2008
Jæja, þá er ég komin heim úr heiðardalnum.
Ferðin var yndisleg í alla staði. Ég gerði margt sem ég hef ekki gert langa lengi og ætla ég að blogga um það þegar tími gefst til en í stuttu máli þá hafa þessu 40 kíló sem farin eru gjörbreytt lífi mínu.
Ég steig svo á vigt í morgun og hafði ég þyngst um 400 grömm. Mér finnst það nú ekki mikið miðað við sukkið á mér, hehe, amma var á fullu að baka, reyndar hollari kökur með xylitol og spelti og svona, en náttúrulega ekkert megrunarfæði! Eins fékk ég mér pínu snakk hér, nokkrar kexkökur hér og svona. En vitiði hvað, mér finnst það bara allt í lagi! Ég var í sumarfríi og ég veit mín mörk, ég veit alveg að ég ræð við smá pásu og kemst aftur á rétta sporið!
Ég er allavega komin á sporið aftur.
Velkomin heim. Frábært þegar maður finnur svona greinilega hvernig kílóafjöldinn, sem maður heftur misst, skiptir sköpum. Gangi þér vel
5. júní, 2008 kl. 0:27
Velkomin heim
Þú ert náttúrulega hrikalega dugleg eins og alltaf!!