Posted by: Dídí on: 28. maí, 2008
Jæja, þá er fyrsta vigtun á nýju mataræði að baki. Þetta virðist vera að virka vel og fóru 1,5 kíló þessa vikuna!
Ég er skiljanlega ótrúlega ánægð með þetta og stolt af sjálfri mér. Núna er ég þá búin með 41,6 kíló sem er ekkert smá magn og eftir eru 33,1 sem virðist varla neitt miðað við það sem búið er.
Ég hef hinsvegar pínu áhyggjur að ég sé að borða of lítið, hef miðað við neðri hlutann af 1200-1500 skalanum en ætla að vera í efri hluta hans þessa vikuna og sjá hvað gerist. Ég veit ekki hver grunnorkuþörf mín er en ef ég nota Harris Benedict jöfnuna fæ ég út 2500 kcal og talað er um 500-1000 kcal minna en grunnorkuþörf vilji maður léttast. Hinsvegar á maður aldrei að fara undir 1200 kcal og ég passa mig að gera það ekki. Mér finnst 1200 kcal vera alveg hellingur reyndar og er alltaf södd og líður vel. Ætla samt að mjaka mér aðeins nær 1500 kcal og sjá hvað gerist eins og ég segi.
Ég er reyndar að fara út á land á morgun, verð í fimm daga. Mamma flytur inn að passa kisu á meðan enda ekki hægt að skilja prinsessuna eftir eina og yfirgefna.
Ég verð hjá ömmu og afa og þá gæti nú orðið eitthvað erfiðara að borða hollt enda amma af gamla skólanum en ég mun gera mitt best. Ætla reyndar alls ekkert út í eitthvað rjómatertu-ís-nammi át og hún veit það alveg, bara gamaldags heimilismatur.
Það verður æði að komast aðeins í frí, út úr borginni, finnst alveg nauðsynlegt að gera það nokkrum sinnum á ári!
Kveð ykkur með honum tikka mínum sem er voða glaður að fá aðeins að spretta út sporunum.
Frábært hjá þér!! Dauðöfunda þig af að komast út úr bænum, hafðu það gott í sveitinni skutlan þín
Frábært hvað þessi nýja breyting virkar vel:D
Góða skemtun í sveitinni:D
Gaman að sjá hvað þér gengur vel snúlla
Þetta gengur eins og í lygasögu hjá þér.
Flottur árangur og góða skemmtun.
Flott að sjá hvað þér gengur vel!
En æðislegt að heyra að “frelsiskúrinn” sé að virka vel!! Það verður gaman að fylgjast með framhaldinu
)
Your blog is very interesting, if you want you can visit mine at http://www.oscurosire.wordpress.com
28. maí, 2008 kl. 10:23
Aldelis glæsilegt hjá þér. Góða ferð í sveitina og njóttu vel!