Posted by: Dídí on: 22. maí, 2008
Ég hef fengið gleðina aftur! Tilhugsunin um danska í ár eða tvö í viðbót var farin að hafa verulega slæm áhrif á mig en mikið líður mér vel og skemmti ég mér á þessu nýja mataræði!
Í gær t.d. fékk ég mér súkkulaðiís sem ég gerði með nýju ísvélinni minni. Samt var dagurinn í kringum 1200 kaloríur! Pælið í því!
Á sunnudaginn ætla ég svo að bjóða ömmu og afa í kaffiboð og mun þá bjóða upp á rabbabarapæ með heimatilbúnum vanilluís. Í hádegismatinn ætla ég að fá mér hamborgara með öllu tilheyrandi, samt verður dagurinn undir 1500 kaloríum!
Já, frelsið er yndislegt ef maður kann að höndla það og enn sem komið er stend ég mig bara glimrandi.
Ég finn samt alveg að hættan eykst þegar mataræðið er orðið frjálslegra, hugsunin um að fá sér smá nammi og telja það bara með er til staðar en ég ætla að standast þetta, hef ekkert með nammi að gera!
Ég er ennþá að pæla í GI stuðlinum og er að aðlaga hann að mínu mataræði hægt og rólega, þarf að leggjast yfir bækurnar mínar þegar ég hef tíma, svaka plan fyrir helgina svo það verður lítill tími þá.
Ætla að gefa ykkur uppskriftina af ísnum mínum, hann er náttúrulega ekki danskur fyrir fimm aura en þið hinar sem eruð að telja kcal getið notað hann!
1 dós sýrður rjómi (10%)
2 dl fjörmjólk
50 – 100 g xylitol (eftir smekk)
50 g 70% súkkulaði, skorið í bita
Blandið saman öllum hráefnum í blandara og setjið síðan í ísvél (ég nota philips). Ísinn er tilbúinn á hálftíma.
Þetta er skammtur fyrir 4. Hver skammtur er þá 200 kaloríur sé miðað við 100 g af xylitol. Mér finnst 50 g alveg nóg en ég er orðin svo óvön sykri að það er kannski ekki að marka. Ef notuð eru 50 g þá er skammturinn 175 kcal.
Svo er sjálfsagt hægt að nota undanrennu og 5% sýrðan til að spara enn frekar kaloríur, veit samt ekki hvort hann kæmi jafn vel út.
Fyrir ykkur dönsku sem gerið ís og notið mikið af undanrennudufti þá vil ég benda ykkur á xylitol, þetta er náttúrulegur sykur sem hefur ekki áhrif á blóðsykur nema þá frekar lækkandi. Færri kcal eru í honum en undanrennuduftinu (240 vs. 358) og þá sleppiði líka við að setja gervisætu. Auðvitað ekki by the book en samt ekkert verra en undanrennuduftið!
Um daginn gerði ég svo bananaís sem þið á danska gætuð alveg gert ef þið þorið að nota xylitol. Hann var svona:
1 banani
50 g xylitol
1 dós sýrður rjómi (10%)
2 dl fjörmjólk
10 g jarðhnetuolíu (eða önnur bragðdauf)
1 msk limesafi
Bananinn og xylitolið er þeytt saman og síðan restinni blandað út í. Þessu hellt í ísvélina og er tilbúið á 30-40 mínútum.
Sé þessu deilt í fjóra skammta þá er hver skammtur 150 kcal eða 1 1/2 mjólkurskammtur, 1/4 ávöxtur og 1/2 x fita. Xylitol telst svo ekki eins og undanrennuduftið myndi ekki teljast.
Jæja, ætli ég sé ekki búin að blaðra ykkur í kaf kellurnar mínar.
Kveð núna áður en þið sofnið yfir lestrinum!
Bara út um allt, í Nóatún, Hagkaup, heilsubúðunum og svona.
Ég er að nota núna frá NOW sem ég keypti í Maður Lifandi en svo er xylosweet í hvítum pokum mjög vinsælt og það fæst út um allt liggur við.
OK flott. Ertu að nota þetta eins og Söd?
Var í ELKO í gær og var næstum búin að kaupa mér ísvel en hætti við, fannst hún pínu dýr
en á pottþétt eftir að fá mér eina slíka. Eina sem ég var að spá er hvort það sé nauðsynlegt að gera (DDV) ís með vél, þegar maður gerir jólaísinn er hann bara frystur (að vísu rjómi og egg í honum) bara pælingar í mér á laugardegi
Gott að þú ert full tilhlökkunar. Alltaf gott að breyta til
Hellú
Takk fyrir gærkvöldið, fyrsta júrópartýið mitt og frábæra súpu 
Kv. Valdís
já og hérna er linkurinn á lýtalækningahorrorinn sem ég var að tala um. Hún heitir Jocelyn Wildenstein og er nr. 1 á þessum lista.
http://community.livejournal.com/ohnotheydidnt/22731514.html?page=3
Namm namm hljómar vel – ég verð greinilega að fara að taka ísvélina fram aftur! Notaði hana svo mikið á tímabili að ég þurfti að leggja hana í smá hvíld !!!
Gangi þér vel með frelsið skvís, ég kem og peppa þig upp reglulega! Ég hef aðeins kynnt mér GI mataræðið og þetta hljómar mjög lógískt fyrir mér og ég held að ef maður nái að halda blóðsykrinum jöfnum þá minnki (eða hætti) öll sætuþörf hjá manni!
Gangi þér sem allra best!
Mikið er gott að þér líður vel og skemmtir þér vel á nýju mataræði 
Hlakka til að sjá tölur á miðvikudaginn.
Somehow i missed the point. Probably lost in translation
Anyway … nice blog to visit.
cheers, Forelimb.
23. maí, 2008 kl. 10:51
Það verður gaman að fylgjast með þér í þessu nýja
hvar fær maður xylitol?