Posted by: Dídí on: 21. maí, 2008
Jæja, þá er ég búin með einn dag á nýja mataræðinu og dagur tvö hafinn!
Ég vigtaði mig í morgun í nærfötunum einum saman og var ég þá 109,6 kíló. Þetta er náttúrulega allt önnur tala en kæmi eftir kvöldmat en ég hef alltaf farið eftir þeirri tölu sem kemur á þeim tíma sem ég hef ákveðið þannig að þetta er talan í dag.
Þetta þýðir að ég er búin að missa 40,1 kíló!
Það þýðir ekkert annað en myndataka í kvöld og mælingar.
Kem með þetta inn í kvöld og set þá líklega inn matseðil og eitthvað líka.
Svona lítur tikki litli út í dag, svaka sætur.
YESSSS!!! Frábær áfangi – glæsilegt hjá þér.
Hlakka til að sjá myndir.
Gangi þér vel með nýja mataræðið
Þú ert hetja stelpa!
Gangi þér vel áfram. Er alveg sammála þessum pælingum þínum um kúra og mataræði. Maður verður að finna taktinn og það sem hentar manni best til framtíðar.
hæ hæ
Tiltölulega ný á danska er samt að reyna í þriðja sinn. Má ég kannski fá hjá þér lykilorðið og fylgjast með þér?
Takk og gangi þér vel
Hæ pæ, líst vel á þetta breytta matarræði hjá þér:D
En mig langaði einmitt að segja þér að þegar ég og Bjarki vorum á danska þá vigtuðum við okkur alltaf buttnekked á morgnana eftir að mar var búnað pissa og áður en mar borðaði morgunmat:) mér finnst það virka betur heldur en að ger aþað eftir kvöldmat því þá er ekki eins mikið að marka það finnst mér…maginn fullur af mat og svoleiðis….
21. maí, 2008 kl. 13:12
Vá Dídí 40 kg er ekkert smá, ég er alveg viss um það að þú átt eftir að taka restina og það með stæl á þinn hátt! Þú ert nú meiri hetjan