Posted by: Dídí on: 20. maí, 2008
Ég fór ekki í vigtun í dag, var sko ekki tilbúin að missa af sekúndu af Eurovision þakka þér fyrir!
En ég steig á vigtina hér heima og samkvæmt henni hef ég misst 400 grömm, ekki mikið það en niður er víst alltaf niður.
Svo er ég búin að vera í pínu pælingum, held að ég sé vaxin upp úr danska kúrnum. Ég er komin á þann stað núna að mér finnst danski vera meira að hamla mér en hjálpa. Einhverjar eiga sjálfsagt eftir að spá af hverju ég ætli að hætta á einhverju sem er svona greinilega að virka fyrir mig. Ástæðan er sú að þótt ég sé að missa kíló þá er það ekki endilega það eina sem maður er að hugsa um. Mér vil líða vel á meðan ég er að gera þetta, ég vil gera þetta sem lífstílsbreytingu en ekki sem kúr og staðreyndin er bara sú að danski er ekkert annað en kúr í mínum augum. Ég vil ekki borða eins og danski segir það sem eftir er lífs míns og þessvegna er ég alltaf að hugsa “þegar ég verð komin í kjörþyngd þá…” og svona hugsunarháttur er ekkert að hjálpa mér! Eins finnst mér danski viðhalda græðgis- og kvöldáti þar sem ég þarf alltaf að vera að hugsa um mat, hugsa um að klára hinn og þennan skammtinn.
Þið megið ekki skilja þetta svo að ég sé hætt, búin að gefast upp! Alls ekki! Þetta er engin uppgjöf og ég vona að þið sjáið það og standið að baki mér í þessu því ég þarf líka stuðning núna, jafnvel meiri en upp á síðkastið.
Ég mun að nokkru leyti fylgja grunnhugmyndum danska, mikið grænmeti, mikið af ávöxtum, góðar olíur, góð prótín etc. Ég ætla hinsvegar ekki að hengja mig í skammtastærðum, ef ég vil eins ostsneið í stað 25 gramma þá fæ ég mér það, ef ég vil þrjár sneiðar af grófu brauði einn daginn þá fæ ég mér það, ef ég vil enga mjólk og ekkert brauð einn daginn þá fer ég ekki að troða því ofan í mig. Þetta mataræði verður einnig byggt að miklu leiti á hugmyndum um sykurstuðulinn en hann er ég búin að vera að kynna mér lengi núna. Fyrir þá sem vilja kynna sér hann er hægt að gúgla glycemic index eða GI. GI mataræði gengur semsagt út á jöfnun blóðsykurs og hef ég mikla trú á þessu mataræði til frambúðar fyrir mig.
Ég ætla semsagt að leggja danska á hilluna í 4-5 vikur og sjá hvernig þetta gengur fyrir sig. Ef ég sé að þetta er ekki að virka, ég er ekkert að léttast eða jafnvel að þyngjast þá tek ég danska aftur upp.
Ætla að vigta mig í fyrramálið, fyrir morgunmat og svo vikulega héðan í frá á miðvikudagsmorgnum. Verður forvitnilegt að sjá hvernig þessi tilraun mín kemur út.
Ég skil þig mjög vel að langa að sleppa úr þessum skammtastærðum, ég er sjálf búin að vera í svipuðum pælingum með að temja mér bara skynsamlegt mataræði sem byggir svona að hluta á danska með grænmetið og sleppa unnum kjötvörum o.s.frv. Danski virkaði rosalega vel fyrir mig á sínum tíma en ég er bara einhvernvegin ekki að ná mér á strik á honum núna. Svo þegar dagarnir ganga ekki upp með skammtastærðir og slíkt þá fer ég einhvernvegin í algjört rugl bara!
Þar sem þú ert búin að vera svona rosalega dugleg og í ölllum þessum matarpælingum og ert meðvituð um hvað þú ert að setja ofan í þig þá efast ég ekki um að þú finnir þér þá leið sem hentar þér til frambúðar
Vona bara að ég geri það líka
Gangi þér rosa vel
Held að það sé um að gera að prófa þetta ef þú heldur að það hjálpi þér og gott að setja sér tímaramma. Ég hef sjálf prófað þetta og vægast sagt gengið illa enda er ég að byrja aftur að borða eftir danska enda líður mér best þá
En vona svo innilega að þér takist betur upp en mér og ég hlakka til að fylgjast með gangi mála hérna
þú ert nátturlega búin að vera svo lengi á danska að þetta gengur örugglega bara vel.
Held að það saki ekki að prófa
held að ef maður sé farinn að efast um það sem maður er að gera, að það hennti osfrv. þá sé það ekki að gera manni gott, þá er gott að breyta til þó svo það sé bara til smá tíma.
Gangi þér vel í nýja prógramminu 
kv
mimzy
Gangi þér vel með tilraunina. Líst vel á að taka þetta til reynslu og sjá hvað setur.
Gangi þér rosa vel
Við fylgjumst með þér áfram og veitum þér aðhald!
21. maí, 2008 kl. 7:02
Þú vest auðvitað best sjálf hvað hentar þér best þá stundina. Ég held nú að þetta verði bara góð tilbreyting fyrir þig þú ert búin að pæla svo mkiið í þessum “fræðum” undanfarna mánuði að þetta verður bara “challenge” fyrir þig. Gangi þér vel með þetta og auðvitað fylgist maður með