Dídí í átaki

Vikan

Posted by: Dídí on: 19. maí, 2008

Jæja þá er enn ein vikan liðin, þær eru farnar að vera ansi margar á danska. :lol:

Eníveis, mér gengur alveg sæmó, held að ég sé farin að vera aðeins of líbó á þetta allt saman, þarf aðeins að stíga á bremsurnar og taka mig í tékk. Ég er samt ekkert að fara neitt yfir strikið. Æi hvað er ég að blekkja mig, er farin að fara fullt yfir strikið með hlutum sem eru ekki svo vel séðir á danska!

Ég er farin að taka að láni extra frá næstu viku, fór s.s. 1 1/2 kross fram yfir þessa vikuna, eins át ég ótrúlega mikið af sykurlausu rusli og tyggjói, örugglega meira en fimm á dag. Eins hef ég farið yfir leyfilegan kjötskammt og líka undir og tel mér trú um að þetta balance’ist nú út. En þetta gengur ekki út á það! Ef ég ætla að borða eftir danska þá þýðir þetta ekki lengur því danski gengur jú út á nákvæma vigtun frá a – ö!

Á ekki von á neinu sérstöku frá vigtinni á morgun og þá ekki bara vegna þessa synda heldur er ég með þvílíka vöðvabólgu og bólgnir vöðvar mínir safna alltaf vökva.

En að skemmtilegri fréttum, fjárfesti í gær í ísvél og matvinnsluvél. Ætla að vígja ísvélina í kvöld og svo prófa ég matvinnsluvélina bráðum. Verð með partý á eurovisionkvöld og ætla að bjóða upp á mexíkóska súpu og quesadillas, þá mun hún koma sér vel. :)

Later!

3 svör to "Vikan"

Hæ skvís skil vel að þú sért aðeins farin að fara út fyrir “strikið” en finnst þú svo dugleg….passaðu þig bara ekki að fara of langt ég gerði það í nóv og hef ekki náð mér almennilega á stryk. En er að komast í gírinn aftur og nú skal þetta hafast.
Gangi þér áfram vel skvís..hlakka til að halda áfram að fylgjast með. Bætti þér inn í tenglana mína eins og síðast :-)

Æ er (eða var) einmitt í þessum sömu sporum, er að komast á réttu DDV brautina þannig að þetta fer að koma. Svo fer maður að mæta í vigtun í Garðabæinn eftir 2 vikur og þá hittumst við kannski :)
GANGI ÞÉR VEL!

Hæ Hæ
Vá þú ert búin að vera svo dugleg.Og haltu áfram á sömu braut.Við eigum sko eftir að vera flottar það er á hreinu.Og takk fyrir kvittið á síðuna mína.
Baráttukveðjur og hafðu það sem allra best elsku dúllan mín.,,,glinggló,,,

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

allamalla við Enn á lífi
Oscar Ferrari við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
Gerður við Enn á lífi

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 87,967 hits

a

Sarpur

 

maí 2008
M Þ M F F L S
« apr   jún »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031