Posted by: Dídí on: 16. maí, 2008
Vá hvað ég er þreytt!! Við erum bara búnar að vera tvær í búðinni núna síðustu þrjá daga og á sama tíma var verið að auglýsa. Við erum búnar að vera á stanslausum þönum, allan daginn, þessa þrjá daga! Þetta er svo ekki búið enn! Neinei! Vinna á morgun líka.
En maður verður bara að slappa vel af á milli, ég sannfærði manninn minn um að elda svo ég losna við það, ætla bara að tjilla í sófanum í kvöld!
En ég ætla að deila með ykkur sjúklega góðri uppskrift sem fólk sem er ekki á DDV er líka að fíla, meira að segja Bjarni minn en heilsufæði er ekki hans uppáhald!
45 – 60 g tortilla
50 g kotasæla
60 g foreldaðar kjúklingabringur
5 – 10 g dijon hunangssinnep (eftir smekk)
Nokkrar sneiðir sveppir
Nokkrar ræmur rauð paprika
Nokkrir rauðlaukshringir
Leggið tortilluna á disk og smyrjið 5 – 10 g af sinnepi á hana. Setjið þar ofan á kotasæluna, í rönd eftir miðjunni. Þar næst fer kjúklingurinn og að lokum grænmetið. Svo lokiði tortillunni og hitið hana í 1 – 2 mínútur í örbylgjuofni.
Ég sver það, þetta er mergjað og mana ykkur öll í að prófa þetta.
Eins og þið sjáið þá er ég að nota 45 gramma tortillu en þá borða ég oftast 15 g hrökkbrauð að morgni eða fæ mér morgunkorn. Auðvitað er þetta ekki alveg eftir bókinni ensamt ekkert of mikið kolvetnamagn. Svo er náttúrulega líka hægt að nota 60 g tortillu og fá sér þá bara morgunkorn um morguninn. Þá væri hægt að setja meira grænmeti og allt upp í 80 g kjúkling. Ég næ svona 50 grömmum grænmeti í þetta og svo er bara að taka eitthvað auka með sér.
Annars gengur allt bara vel, hreyfing er ekki alveg inni í myndinni núna enda er ég ennþá að venjast auknu álagi. Mataræðið gengur vel og ég vonast eftir góðri tölu í næstu vigtun!
Bis später! Dídí.
18. maí, 2008 kl. 1:02
nammi namm þetta ætla ég sko að prófa, er sinnepið ekki bara extra annars?