Posted by: Dídí on: 13. maí, 2008
Þessi færsla er speglun af seinustu, enda fóru aftur 200 grömm! Ég er alveg sátt enda átti ég ekkert spes góða viku. Tók smá hliðarspor, hef verið léleg í fitunni, átti erfitt með skipulag og svona en fór þó ekkert í svindl fyrr en í gær. Í gær fór ég semsagt út að borða og fékk mér hamborgara á TGI Fridays, þetta var nú ekkert svaka svindl, óvigtaður borgari með osti og brauð. Var búin að borða 60 grömm af brauði fyrr um daginn svo ég fór í svona 120 grömm. Þetta brauðát fór greinilega alveg með mig því í dag borðaði ég allt ALLT of mikið af brauði!
Nú er hinsvegar bara að standa sig vel þessa vikuna og fá góða tölu næst.
Annars gengur bara vel, prófin búin og mikið er ég ánægð með það. Hinsvegar er ég að drepast úr vöðvabólgu út um allt, ekki alveg jafn gaman…
En ég reyni að fara að blogga aftur, hef fullt að segja en er bara með bloggleti, finnst mikilvægara að glápa á TV á kvöldin.
Sæl Dídí
Mér finnst þú vera að standa þig vel. Miðað við allt sem þú ert að brasa núna, próf, vinna og það allt. Til hamingju með góðann árangur og svo er bara að halda áfram
Kv.V
Léttingur er alltaf léttingur:) Stendur þig vel eins og alltaf!
Ótrúlegt hvað brauð getur komið manni út af sporinu. Sjálf finn ég alltaf rosalega nartþörf ef ég borða hveiti/brauð extra. Þá er eins og blóðsykurinn fari alveg úr jafnvægi?!
Við viljum franskbrauð … einhverjir fleiri en þeir bræður Karíus og Baktus sem kalla.
Enda getur brauð verið sjúklega gott. Ég man þá tíð, fyrir danska, þegar ég skrapp út í Bakaríið við brúna og keypti fullan bakpoka af mismunandi brauði og borðaði svo örugglega hálft brauð með ýmsu áleggi.
En nú er skammturinn 2 og í mesta lagi 3 frekar ræfilslegar sneiðar.
Játning brauðætunnar: Mér hættir til að rífa í mig brauðsneið síðdegis, byrja á smábút og held svo bara áfram þar til sneiðin er gufuð upp.
The morale of the story: Brauð er tvímælalaust ávanabindandi….
En við látum brauðið ekki sigra okkur og gætum hófs.
Eins og hófið er nú alltaf þreytandi.
En nú ætla ég að borða brauð …. og lifur og baunaspírur og graskersmauk sem bíður frammi í kaffistofu.
13. maí, 2008 kl. 21:13
Til hamingju með að vera búin í prófum
Mér finnst 200 niður nú bara gott miðað við auka brauð! Ég allavega verð eitthvað svo útblásin ef ég borða of mikið af brauði.
Snigillinn verður nú aðeins að fá að njóta útsýnisins á toppnum áður en hann rúllar sér niður hinu megin