Dídí í átaki

Vigtun fjörutíu og fjögur

Posted by: Dídí on: 7. maí, 2008

Ég er búin að vera svo bissý að ég gaf mér ekki tíma til að blogga í gær um vigtunina. Var bara að læra og svo var próf í morgun. Mikið er ég fegin að þetta er búið! Í raun er eitt próf eftir en það er saga svo það er bara pínu pons upprifjun. :)

En að vigtuninni, það fóru 200 grömm! Ekki mikið en samt allt í rétta átt. :) Ég átti nú alveg eins von á þessu, það fer að líða að þessu tíma mánaðarins og ég finn alveg að ég er uppfull af vökva. Er að sötra eplaedik og svo nettlute en væri alveg til í uppskrift af engifertei ef einhver lumar á slíku. ;)

Núna lítur snigli minn svona út, svaka sætur! Verður myndarlegri með hverju gramminu sem hann nálgast takmarkið, rétt eins og ég! :D


6 svör to "Vigtun fjörutíu og fjögur"

Ég hef keypt ágætis engifer- og sítrónute, Ginger Lemon frá Yogi Tea… hef svosem ekki verið að drekka það sem vatnslosandi, finnst bara engifer og sítrónur góðar…

Niður er alltaf niður :) Gott hjá þér.

Ég sýð nú bara ferska engiferrót í vatni og set svo sneið af lime útí. Drekk bæði heitt og geymi svo í ísskáp og drekk kalt. Finnst þetta ferlega gott :) Mér finnst svona “te-bragð” nefnilega ekki gott svo mér finnst best að drekka þetta svona. Svínvirkar alveg, borgar sig ekki að drekka þetta mikið rétt fyrir svefn ef maður ætlar ekki að vakna tvisvar til að pissa ;)

Já með engiferte, eða seyði. Ég hef einmitt bara skorið niður ferska engiferrót og hellt sjóðandi vatni yfir og látið standa smá. Sýð ekki rótina, bara helli sjóðandi vatni yfir. Svo er hægt að sæta með smá sætuefni ef maður vill. Mér finnst þetta mjög gott. Man ekki svo sem hvað ég sker niður mikið, kannski cac 1-2 cm af rótinni í sneiðar í einn bolla.

Alltaf gaman að lesa hjá þér, en aldrei kvittað áður :) En flottur árangur hjá þér .. og eins og Gerður skrifaði, 200gr eru 200 gr, svo lengi sem maður er á niðurleið er þetta flott =)

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,956 hits

a

Sarpur

 

maí 2008
M Þ M F F L S
« apr   jún »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031