Posted by: Dídí on: 28. maí, 2008
Jæja, þá er fyrsta vigtun á nýju mataræði að baki. Þetta virðist vera að virka vel og fóru 1,5 kíló þessa vikuna! Ég er skiljanlega ótrúlega ánægð með þetta og stolt af sjálfri mér. Núna er ég þá búin með 41,6 kíló sem er ekkert smá magn og eftir eru 33,1 sem virðist [...]
Posted by: Dídí on: 22. maí, 2008
Ég hef fengið gleðina aftur! Tilhugsunin um danska í ár eða tvö í viðbót var farin að hafa verulega slæm áhrif á mig en mikið líður mér vel og skemmti ég mér á þessu nýja mataræði!
Í gær t.d. fékk ég mér súkkulaðiís sem ég gerði með nýju ísvélinni minni. Samt var dagurinn í kringum 1200 [...]
Posted by: Dídí on: 21. maí, 2008
Jæja, þá er ég búin að taka myndir og setja inn, mældi mig fyrst í bak og fyrir og ekki virtist mikill munur. Tók svo myndirnar og bar saman og vá! Kannski stend ég eitthvað beinni núna eða eitthvað en allavega er svaka munur á maganum á mér!
Nú er bara að halda áfram, [...]
Posted by: Dídí on: 21. maí, 2008
Jæja, þá er ég búin með einn dag á nýja mataræðinu og dagur tvö hafinn!
Ég vigtaði mig í morgun í nærfötunum einum saman og var ég þá 109,6 kíló. Þetta er náttúrulega allt önnur tala en kæmi eftir kvöldmat en ég hef alltaf farið eftir þeirri tölu sem kemur á þeim tíma sem ég hef [...]
Posted by: Dídí on: 20. maí, 2008
Ég fór ekki í vigtun í dag, var sko ekki tilbúin að missa af sekúndu af Eurovision þakka þér fyrir!
En ég steig á vigtina hér heima og samkvæmt henni hef ég misst 400 grömm, ekki mikið það en niður er víst alltaf niður.
Svo er ég búin að vera í pínu pælingum, held að [...]
Posted by: Dídí on: 19. maí, 2008
Jæja þá er enn ein vikan liðin, þær eru farnar að vera ansi margar á danska.
Eníveis, mér gengur alveg sæmó, held að ég sé farin að vera aðeins of líbó á þetta allt saman, þarf aðeins að stíga á bremsurnar og taka mig í tékk. Ég er samt ekkert að fara neitt yfir [...]
Posted by: Dídí on: 16. maí, 2008
Vá hvað ég er þreytt!! Við erum bara búnar að vera tvær í búðinni núna síðustu þrjá daga og á sama tíma var verið að auglýsa. Við erum búnar að vera á stanslausum þönum, allan daginn, þessa þrjá daga! Þetta er svo ekki búið enn! Neinei! Vinna á morgun líka.
En maður verður bara [...]
Posted by: Dídí on: 13. maí, 2008
Þessi færsla er speglun af seinustu, enda fóru aftur 200 grömm! Ég er alveg sátt enda átti ég ekkert spes góða viku. Tók smá hliðarspor, hef verið léleg í fitunni, átti erfitt með skipulag og svona en fór þó ekkert í svindl fyrr en í gær. Í gær fór ég semsagt út að borða og [...]
Posted by: Dídí on: 7. maí, 2008
Ég er búin að vera svo bissý að ég gaf mér ekki tíma til að blogga í gær um vigtunina. Var bara að læra og svo var próf í morgun. Mikið er ég fegin að þetta er búið! Í raun er eitt próf eftir en það er saga svo það er bara pínu pons upprifjun. [...]
Posted by: Dídí on: 5. maí, 2008
Vikan mín var bara flott held ég. Langt síðan ég hef borðað svona lítið extra, vonandi sést það í vigtuninni.
Skyldan:
Fiskur 5x
Kjöt 3x
Egg 4x
Lifur 1x
Valið:
Kjúklingur 2 1/2x
Feitur ostur 3x
Magur ostur 3 1/2x
Morgunkorn 2x
Extra:
12/21 krossar
—
Annars hef ég það bara gott. Hlakka til að fara í vigtun, er vongóð fyrir þessa viku.
Later [...]
Nýleg ummæli