Dídí í átaki

Léleg vika

Posted by: Dídí on: 27. apríl, 2008

Jæja, ég hef ekki mikla trú á þessari viku. Er búin að vera ofsalega þrútin öll og eitthvað léleg. Stalst svo á vigtina og er alveg kílói þyngri en í seinustu vigtun… En maður heldur samt bara áfram. Þetta er svo sem bara mér að kenna, fór í vinnudjamm á föstudaginn, langaði ekkert spes en vildi ekki vera party pooper. Það var samt voða gaman, borðuðum indverskan, ég valdi rétti sem voru bara með grænmeti og kryddblöndu en borðaði svo ALLT of mikið af hrísgrjónum og nan brauði. Svo þurfti ég að drekka eins og 3 sopa af sykraðri súrmjólk þar sem einn rétturinn var svo sterkur að mig hreinlega sveið í hálsinn og vatn var ekkert að virka. En ég borðaði samt ekkert meira og drakk auðvitað ekki neitt. Svo dönsuðum við eins og vitleysingar og skemmtum okkur, var svo reyndar vinna daginn eftir og ég var ekki alveg að fýla það að vinna á laugardegi, finnst helgin alveg fara í súginn. :? En það venst sjálfsagt.

Svo þurfti ég bara að læra í dag svo þetta var í raunar frekar lame helgarfrí. En ég náði samt að klára verkefnin þannig að annar áfanginn er búinn fyrir utan lokapróf. Verður bissý vika, þarf að klára verkefni og læra undir próf og vinna og og og *dæs*. En svo verða próf 7. og 9. maí og eftir það verður bara vinna fram að hausti þegar ég byrja í Háskólanum. Víí!

En vikan mín leit svona út:

Skyldan:
Fiskur 5 1/2x
Kjöt 3x
Egg 4x

Valið:
Kjúklingur 2 1/2x
Feitur ostur 4x
Magur ostur 2x
Morgunkorn 3x

Extra:
21/21 krossar

Æi mig langar að léttast þessa vikuna, vona það. :( Langar að ná helmingsmarkinu sem eru 1,3 kíló. Samkvæmt léttings sögunni gæti það alveg gerst svo ég vona bara að þetta sé vatn sem fari eða að vigtin mín sé að ljúga að mér. Ég allavega gefst ekkert upp, þarf samt kannski meira pepp og stuðning ef ég fæ slæma niðurstöðu. :lol:

5 svör to "Léleg vika"

Veistu, mér finnst bara ekkert skrítið við að vigtarmálin riðlist eitthvað hjá þér meðan þú ert að venjast nýrri vinnu plús að vera í verkefnum og próflestri og svona. Tekur bara smá tíma að ná jafnvægi aftur, en það kemur allt saman :) Ég mæli bara enn og aftur með engifervatninu mínu – hef alveg tröllatrú á því þegar maður er svona þrútinn :) Hmmm, talandi um það þá man ég að ég kláraði mitt í gær – best að sjóða meira til næstu viku.
Samviskan betri hjá mér þessa viku þó hún sé nú ekki alveg hrein – en held samt nógu hrein til að mig dreymi þig ekki þessa vikuna hahahaha
Gangi þér vel skutla :)

Já ég drekk sjálf alltaf eplaedik sem hreinsar út. En kannski ég þurfi að fara út í frekar aðgerðir hehe. :)

Ágætt að ég hef ekki verið að hrella þig meira í draumaheimum. :lol:

Já segi nú bara eins og hérinn, við breyttar aðsræður þarf smá aðlögun og það er í þessu eins og öðru. Smá hliðarspor gerir oftast ekki mikin skaða ef maður getur komið sér á þá beinu fljótt og vel ;) Gangi þér vel með lærdóminn og allt það :)

Nammi, indverskur matur er svo góður, sjálf leyfi ég mér helst að fá mér indverskan eða tælenskan mat í skyndibita, innihalda oftast mikið grænmeti, töluvert hollari en pizzur og hamborgarar og líka svo ljúffengt… þó að vissulega séu sumar sósurnar ansi feitar. Og það er erfitt að passa sig á nanbrauðinu…
Nóg að gera hjá námsmönnum þessa dagana, hvað ertu að fara að læra í Háskólanum?

Ég er að fara í íslensku. :) Ég leyfi mér helst pizzu ef ég fæ mér skyndibita, finnst hún best. Hehe, hef einu sinni leyft mér það á þessum tíu mánuðum, en það var bara þessi eina pizza og svo strax aftur danski. :)

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,956 hits

a

Sarpur

 

apríl 2008
M Þ M F F L S
« mar   maí »
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
282930