Posted by: Dídí on: 22. apríl, 2008
Urr purr, fór upp um 600 grömm. En það er ekkert skrítið, búin að borða kvöldmatinn (sem er nú nánast 600 grömm), svo er líka vöðvauppbygging þar sem líkaminn er að venjast þessu öllu og byggja upp vöðva til að aðstoða við stöðuna. Eins er bjúgsöfnun meðan ég er að venjast því að standa svona mikið. Þetta gæti því alveg þýtt að ég hafi í raun misst 100-300 grömm!
En ég ætla að þjóta, kveð ykkur með sniglinum mínum sæta sem villtist eitthvað og bakkaði en er búinn að lofa mér að fara langt í næstu viku!
Snigillinn á eftir að stökkva fram í næstu viku, þegar að það kemur samanburðarhæf tala eins og hérinn sagði, gangi þér áfram vel
Æ svona er þetta stundum en ástæðurnar eru allar teknar VEL gildar
kemur sko næst, það getur alltaf komið svona við breyttar aðstæður
22. apríl, 2008 kl. 20:01
Ég myndi nú segja að það væri ekki alveg að marka þessa mælingu við hliðina á hinum sko – annar tími dags, búin að borða, farin að vinna og allur pakkinn. Kemur ekki samanburðarhæf tala fyrr en í næstu viku
Gangi þér vel áfram!!