Posted by: Dídí on: 21. apríl, 2008
Jæja, þá er þessi vika að kvöldi komin.
Hún var hreint ágæt, gott að vera komin í vinnu loksins, líður líka ágætlega þarna.
En matarmálin voru kannski ekki alveg tipp topp, ekki eins og ég vil hafa þau en þetta er nú samt alveg fyrirgefanlegt svona miðað við aðstæður.
Svona leit hún út:
Skyldan
Fiskur 4x
Kjöt 3x
Egg 4x
Lifur 1x
Valið
Kjúklingur 2x
Feitur ostur 6x
Magur ostur 2x
Morgunkorn 3x
Extra
21/21 krossar
Eins og þið sjáið er lítið um fisk, eins er mikið af osti og svo aftur extrað í maxi. Þetta er samt alveg innan marka.
Á þó ekki von á að fá mikið út úr vigtuninni. Ástæðan? Ég verð búin að borða kvöldmatinn! Það er alveg nýtt fyrir mér, ætla að fara á þriðjudagskvöldið í vigtun og á fund og þá verð ég að vera búin að borða. En svo næstu viku eftir það verður komin regla á þetta. Reyndar á ég von á að fá meira upp og niður þar sem kvöldmaturinn er svo mismunandi þungur í maga.
Annars ætla ég að fara í leikfimi núna alltaf á þriðjudögum og fimmtudögum fyrir vinnu. Svo verður vonandi sjúkraþjálfun núna 2x í viku meðan ég venst vinnunni. Þessi vika verður erfið, fyrsta heila vikan mín og í raun 6 daga vinnuvika.
En þetta hlýtur að reddast, læt kallinn þá bara sjóða fisk eða eitthvað.
En núna ætla ég að skríða í bólið, laters!
Ji, hvað þú ert dugleg – brjálaður metnaður hjá þér!!!!
Svona á að gera þetta, þú getur aldeilis verið stolt af árangri þínum
glæsilegt gangi þér vel með næstu viku
Vááá hvað þú ert rosalega dugleg kona.
Svona á að gera þetta! 
Gangi þér rosalega vel þessa vikuna, í nýju vinnunni og alles.
Kveðja
21. apríl, 2008 kl. 0:49
Hvar ferðu á fundi Dídí? Ég er í RVK og er að pæla hvort Garðabær sé eini staðurinn?
Annars líst mér vel á þessa viku hjá þér