Dídí í átaki

Gengur vel

Posted by: Dídí on: 17. apríl, 2008

Jæja, þá er annar dagurinn að baki. :) Nestið hefur bara gengið vel, í gær fékk ég mér hrátt grænmeti, túnfisksalat og hrökkbrauð, í dag sauð ég mér fisk í örbylgjuofninum og fékk mér afgangsgrænmeti með. Mamma hefur verið svo elskuleg að elda fyrir okkur kvöldmat þessa fyrstu tvo daga sem hefur verið mikil hjálp, enda mikil breyting að vera allt í einu komin í fulla vinnu. :)

Á morgun ætla ég að fá mér skyr drykk, brauðsneið með banana og svo eitthvað grænmeti, t.d. gulrætur. Býst við að þurfa að borða á hlaupum enda nýtt kortatímabil að byrja!

Jæja, farin að glápa á TV, knúsa köttinn og eitthvað fleira letilegt. :)

3 svör to "Gengur vel"

En spennandi að fá nýja vinnu!
Ég rak augun í það hér einhvers staðar að þú værir með litla digital vigt í veskinu, má ég forvitnast um hvar þú fékkst hana?

Já, það breytist ýmislegt við að fara í fulla vinnu :) En þú ert svo skipulögð og dugleg að ég hef engar áhyggjur af að þú farir nokkuð út af sporinu við það :) Ekkert smá heppin að eiga svona hjálpsama mömmu líka!

Til hamingju með nýju vinnuna… og flotta árangurinn… þú gefst ekki upp skvísa :) Maður kannski sér þig einhvern tímann þegar maður fer i búðarráp ;)

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,859 hits

a

Sarpur

 

apríl 2008
M Þ M F F L S
« mar   maí »
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
282930