Dídí í átaki

Túnfisksvefja

Posted by: Dídí on: 14. apríl, 2008

Er búin að vera að fullkomna túnfisksvefjuna mína upp á síðkastið, held að ég sé komin með ágætis uppskrift núna!

Túnfisksvefja

Túnfisksvefja

1 tortilla (60 grömm)
60 g túnfiskur
1 harðsoðið egg
50 g rauðlaukur
30 g létt majó (eða majó/sýrður rjómi)
2 blöð lambhagasalat
4 gúrkusneiðar
6 ræmur appelsínugul paprika

Skerið eggið og laukinn, blandið vel saman við majó og túnfiskinn. Leggið salatblöðin yfir tortilluna, þar ofan á túnfisksalatið, svo agúrkurnar og paprikurnar. Lokið síðan og borðið með góðri lyst. :) Þetta eru svona 140 grömm af grænmeti svo það þarf eitthvað að bæta við. Annars er örugglega gott að setja gulrótaræmur með líka, sérstaklega á sumrin meðan þær eru sætar og góðar. Mjög hentugur hádegismatur. ;)

5 svör to "Túnfisksvefja"

Vá – girnilegt :) Prófa þetta þegar ég verð farin að geta borðað eitthvað af viti aftur !

Þú ert svo mikill snilli! en ein Dídíar uppskriftin komin í sarpinn ;)

slurppp nú slefa ég bara

Sniðugt :) Ég hef einmitt verið að spá hvað ég get gert við túnfisk annað en að borða hann eintóman með gúrku og tómat þegar ég er í vandræðum :p

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,956 hits

a

Sarpur

 

apríl 2008
M Þ M F F L S
« mar   maí »
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
282930