Posted by: Dídí on: 13. apríl, 2008
Long time no write! En það þýðir samt ekkert slæmt.
Hef bara ekkert haft að segja ykkur dömur mínar og herrar. Um helgina er ég búin að vera sjúklega dugleg að læra, búin að klára þrjú söguverkefni sem hafa fengið að sitja á hakanum ansi lengi. Svo gerði ég mér lasagne í gær! Ohh, ég er algjör Garfield, eins og ég er venjulega stabíl átti ég frekar erfitt með mig þegar lasagne afgangarnir voru hérna uppi á borðum! En ég er víst ekki alveg jafn slæm og hann Garfield og náði að hemja mig.
Ég hef verið að grilla mikið, grillaði bestu lambalærisneiðar ever á fimmtudaginn og svo lax á föstudaginn. Gerði grænmetisspjót með lambinu og rótargrænmeti með laxinum, voða gott. Í kvöld var svo bara Nings, ágætt að taka svona leti af og til.
Svo er ég að byrja í Ultratone, amma mín vildi endilega bjóða mér að fara í þetta, hefur tröllatrú á þessu kellan. Ég yrði voða ánægð ef þetta myndi eitthvað hjálpa húðinni, farin að lafa ansi vel á upphandleggjunum!! Svo mætti þetta líka alveg minnka hilluna sem ég er með á rassinum, þetta er mitt problem area, kemur fyrst og fer því víst seinast. Óþolandi þessi hilla!
En þetta fer allt á endanum, þolinmæðin þrautir vinnur allar.
Ég allavega ákvað að friða kelluna og smella mér í 10 tíma, við sjáum hvað setur eftir það.
En samkvæmt hefðinni þá kemur hér matarvikan. Versgú:
Skyldan
Fiskur 5 1/2x
Kjöt 3x
Egg 4x
Lifur 1x
Valið
Kjúklingur 3x
Feitur ostur 4x
Magur ostur 1/2x
Morgunkorn 3x
Extra
21/21 kross
–
Annars vona ég bara eftir góðri viku 700+ er mjög svo ásættanlegt, allt yfir það er frábært.
700 talan kemur vegna þess að ég vil ná undir 100 áður en ég byrja í skólanum í haust og gróflega reiknað þýðir það 700 grömm á viku þangað til.
Enda á einum góðum Garfield.
Hæ skvís, hvað er ultratone?
hæhæ, er að skoða það að byrja á danska … má ég skoða myndirnar hjá þér ?
kv. Inga
Já ókei. Sakar ekki að prófa! Vinkona mín fór í eitthvað svona rafbylgjudót (man ekki nákvæmlega hvaða) og henni fannst hún finna mikinn mun á sér.
14. apríl, 2008 kl. 9:31
Var að skoða myndirnar, barasta glæsilegt hjá þér – keep up the good work