Dídí í átaki

Vigtun fjörutíu

Posted by: Dídí on: 9. apríl, 2008

Það fóru 1,5 kíló þessa vikuna! :D Það þýðir að ég er búin að missa í heildina 36,4 kíló á fjörutíu vikum! Það gerir meðaltal upp á 910 grömm á viku! Prósentuhlutfallið sem ég er búin að missa af byrjunarþyngd er þá 24,3%!

Hvað getur maður gert annað en að hoppa til og frá af kæti. :) Ég er alveg júbbilerandi to say the least. :)

Seinna í dag verða svo teknar myndir og sentimetrar, verður gaman að sjá muninn núna. :D


Update: Myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna, endilega kíkið á þær. Sendi lykilorð um hæl til þeirra sem báðu um! :D

Update II: Búin að mæla sentimetra og mér til einskærrar gleði er farið meira núna en áður hefur farið, fyrir utan eftir fyrstu fimm kílóin. :) Í aðalmælingum fóru 21,5 cm og í aukamælingum 9 cm! Þessi bið hefur vel verið þess virði. ;)

24 svör to "Vigtun fjörutíu"

Frábært!! :) Til hamingju með þennan stóra áfanga! Þetta er ekkert smá “búst” fyrir þig. Tickerinn orðinn ansi flottur. Mér tókst þá að skila léttingnum sem ég “stal” frá þér í síðustu viku ;) hehehe
Hlakka til að sjá myndir og sentimetra í kvöld.

Æðislegt, yndislegt og frábært:) Ég vissi að það kæmi að stóra léttingnum…þú áttir þetta svo inni eftir ótrúlega þolinmæði:D
Innilega til hamingju duglega stelpa:D

GGGEEEGGGGJJJAAAÐÐÐÐ loksins tókst það og það með stæl það verður sko gaman að sjá myndirnar :)

Takk stelpur! Ég næ sko ekki brosinu af mér! Það er bara límt fast! Núna er ekki nema kíló í að ég verði hálfnuð! Mér finnst einhvernveginn eins og þetta sé hóll sem ég er að klifra upp á, þegar ég verð komin alla leið yfir hólinn þá verði ég komin í kjörþyngd, núna er ég alveg að ná upp á topp og svo eftir það verður leiðin auðveldari. :)

En allavega, þær sem vilja lykilorð eða hafa ekki fengið þrátt fyrir að hafa spurt (ég er gleymin) þá endilega skiljið eftir smá nótu hérna. :)

Innilega til hamingju með þetta Dídí! Þú ert svooo dugleg, það er ekkert smá! Keep up the good work :)

Guðrún (var með babe2be bloggið en hætti að blogga….)

Vá en frábært! Svakalegt kikk fyrir þig að vera komin svona langt upp á hólinn þinn :) Þú ert okkur hinum góð hvatning!
Má ég fá að sjá fyrir og eftir myndirnar?

Til hamingju skvísa! Frábær árangur.
Væri til í að fá lykilorðið ef þú vilt senda mér.

Jiiiiiiiii æðislegt!!!!!! Til hamingju:D:D:D:D:D:D Alveg frábært hvað þetta gengur vel hjá þér!!

Enn og aftur til hamingju skvís :) Þetta er stórglæsilegt hjá þér, vægast sagt!

Jibbý til lukku með þetta skvísa, þú stendur þig ekkert smá vel :)

Vá þú lítur svo vel út :) Frábær árangur hjá þér :)

Kv.Vagga

Váááááááááááá!!!! Þú ert svooo dugleg ! Til hamiingju! :)

Sæl, til hamingju með árangurinn. Ég hef nú fyglst með þér í smá tima enda gefur þú mikla orku frá þér.. :) Ég er ný byrjuð á danska og finnst gott og gaman að lesa árangur hjá öðrum, veitir manni smá “búst” fyrir komandi tíð hjá manni sjálfum:)

En mætti ég fá að sjá myndir og sjá betri árangurinn hjá þér?

Kveðja!

Vá frábær árangur…. til lukku:)
væri til í að fá að sjá myndir af þessum frábæra árangri þínum ef ég má?
baráttukveðja

Til hamingju með árangurinn, tæplega kíló á viku er frábært!

Glæsilegur árangur, til hamingju :) Ég sá það strax á þér á fundi í gær að þú hafðir náð markmiðinu þínu :) þú ljómaðir eins og sólin. Ég er búin að missa tæp 600 á viku síðan í september svo þú ert búin að standa þig næstum helmingi betur en ég !!! Nú ætla ég að spýta í lófana og nota þig sem fyrirmynd :)

Ég gef mig fram við þig á næsta fundi, frábært að fylgjast með þér og væri gaman að fá aðgang að síðunni þinni.

Gangi þér vel áfram ;)

frábært hjá þér, ert sko danska kúrnun og hollu líferni til sóma. Má ég skoða myndir hjá þér??, langar að fylgjast með þó ég sé ekki dugleg að blogga þessa dagana..

Sæl Dídí, og innilega til lukku með frábæran árangur! Það væri gaman að fá að sjá myndirnar þínar, maður uppveðrast allur við að sjá lifandi dæmi um það hversu frábær sá danski er. Sjálf missti ég rúmlega 50kg en fékk um 17 á mig aftur við það að ganga með yngstu dóttur mína sem fæddist núna í febrúar. Skráði mig hjá DDV í þarsíðustu viku og stefni ótrauð á toppinn :) .

Baráttukveðja,
Sigga

Sæl.
Ég þekki þig ekki persónulega, en rakst inná síðuna þína í gegnum aðra átaksbloggsíðu. Langar bara að óska þér til hamingju með árangurinn! Sjálf missti ég 20 kíló á danska fyrir tveimur árum, til baka komu 25 kíló eftir mikið áfall í fjölskyldunni og núna er ég komin á skrið aftur. Var að velta því fyrir mér hvort ég mætti nokkuð fá aðgang að myndasíðunni þinni. Hjálpar ótrúlega mikið að sjá svona lifandi dæmi um frábæran árangur!
Gangi þér vel með framhaldið!

Innilega til lukku með árangurinn – veit það eru margir sem “peppast” upp við að lesa um þinn frábæra árangur!!
Gaman væri að fá að kíkja á myndirnar í kvöld….gangi þér áfram sem best:-)

Innilega til hamingju með þenann gífulega árangur! Mátt vera ekkert smá stolt af sjálfri þér.
Og bara svo að þú vitir það þá ertu sko bara idolið mitt eða þannig sko;) Ég er ekki
átaksbloggari en ég er í átaki sjálf og finnst yndislegt að kíkka hérna inn, sjá þinn árangur
og fá meiri von og styrk… Bara láta þig vita:) Og spyrja hvort að ég mætti kíkka á
myndirnar, sjá bretinguna.. þótt ég sé ekki átaksbloggari?

Kveðja,

Lína

FR’ABÆRT!!!!! Innilega til hamingju :) Góð lýsing hjá þér með hólinn…
Má ég fá lykilorðið þitt?? :)
Kv. EllyMae

váá það er ekkert smá flott að vera með yfir 900 gr að meðaltali a viku!!! vá!!

Frábært hjá þér, algjör dugnaðarforkur, má ég fá að sjá myndir :)

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,859 hits

a

Sarpur

 

apríl 2008
M Þ M F F L S
« mar   maí »
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
282930