Posted by: Dídí on: 6. apríl, 2008
Já, bara gleðigleði hér á bæ.
Er eitthvað ofsalega glöð í hjartanu, eins cheesy og það hljómar.
Vikan var bara góð, en svona leit hún út:
Skyldan
Fiskur 5 1/2x
Kjöt 3x
Egg 4x
Lifur 1x
Valið
Kjúklingur 2 1/2x
Feitur ostur 4x
Magur ostur 1x
Morgunkorn 2x
Extra
16/21
Gæti reyndar fengið mér ís á eftir yfir Dexter, er ekki alveg komin með niðurstöðu í málinu.
Ég hef nokkrum sinnum bloggað það hversu súrrealísk þessi tala 34,9 kg er fyrir mér og hvað ég geri mér í raun ekki grein fyrir hversu sjúklega mikið það er. Ég held að ég geti mikið rakið það til þess að ég finn í raun engan mun á mér frá degi til dags. Jú, ég sé muninn, finn hann á fötum og veit af honum og jú það er auðveldara að labba og svona, en… ég var, blessunarlega séð, ekki farin að fá neina stoðkerfisverki sem tengja má offitu. Eins voru ekki komnir neinir aðrir sjúkdómar upp eins og sykursýki etc. Svo er ekki heldur eins og ég sé orðin grönn og því er ég ekki farin að geta hlaupið eða eitthvað svoleiðis.
En allavega, back to the point. Ég fékkáðan semsagt ansi góða sýn á hversu mikið tæp 35 kíló eru, þessi sýn kom í formi einnar 11 ára gamallar stelpu! Ég ætlaði ekki að trúa því að stelpurófan væri ekki nema 37 kíló eins og systir hennar hafði sagt mér og því spurði ég hana áðan, jú hún er 37 kíló. Ég tók hana aðeins upp og VÁ! þetta er ekkert smá mikið! Hugsa sér að ganga um með eina 11 ára undir arminum allan daginn í mörg ár! Ég er meira að segja búin að vera að bera tvær slíkar með mér en er nú laus við aðra þeirra.
Það að sjá rófuna og vita að hún er aðeins þyngri en öll þau kíló sem ég er búin að missa er rosaleg tilhugsun, sem ég í raun trúi varla. En þetta er víst heilagur sannleikur og ekkert hægt að forðast hann, ég var orðin sjúklega feit og hefði endað í gröfinni ansi ung hefði ég haldið áfram á þessari braut.
Núna er ég bara spennt og hlakka til að fara í vigtun á miðvikudaginn því ég er viss um að núna sé komið að deginum sem ég fæ að taka myndir og sýna ykkur öllum.
En svona til vara þá megiði alveg krossa putta fyrir mig.
Hæhæ, VÁ hvað þú ert búin að standa þig vel.
Var að renna yfir síðuna þína og þetta er þvílíkt pepp fyrir mig. 
Er búin að vera í tæpa viku á danska og langar skooo að halda áfram eftir að hafa lesið um þig.
Gangi þér æðislega vel áfram!
PS. Var að spá í að fá að setja linkinn þinn á síðuna mína…. 
Kv. Granna (sem er ekkert rosalega grönn)
Verð bara að dást að þér – var bent á síðuna þína en ég er einmitt búin með fyrstu vikuna mína á DDV. Frábært að skoða hjá þér og sjá að þetta sé virkilega hægt, nú er bara að taka þig sér til fyrirmyndar.
Stendur þig svo vel!
Krossa fingur og tær fyrir góðri vigtun á miðvikudaginn!
þú getur þetta!
kv
Mimzy
Bara frábært hvað þú ert dugleg!
Enn og aftur… unun að fylgjast með þér! Gerði chilli con carne-ið þitt um helgina og hrikalega var það gott!
Vei þér! Takk fyrir mig!
Æ þú stendur þig eins og hetja skal ég segja þér!
Ekkert smá magnað að vera búin að missa eins og einn 11 ára krakka!!!
)
Held þú þurfir ekki mikið á krosslögðum fingrum að halda – þú ert svo hrikalega dugleg og jákvæð – en ég ætla nú samt að krossleggja mína, bara svona just in case 
Sonur minn er álíka mörg kíló og þú ert búin að missa og ég verð uppgefin af að halda á honum í fimm mínútur!!
Hlakka til að sjá tölur á miðvikudaginn og vonandi myndir.
Ég krossa alla fingur og líka tærnar fyrir þig
Ég er handviss um að þú náir markinu núna
Þú ert svo ótrúlega dugleg í þessu
Gangi þér vel….kíki á þig á morgun
Það er alltaf svo gaman og hvetjandi að lesa bloggið þitt. ég er búin að vera að fylgjast aðeins með þér!
og já það er rétt hjá þér hvað maður er oft ekkert að spá hvað þessar tölur sem maður er að missa vega þungt.
Frábær árangur sem þú hefur náð!! þú átt sko HRÓS SKILIÐ!!!
gangi þér vel og ég kíki hér aftur á morgun þegar þú ert komin með nýjar tölur.
6. apríl, 2008 kl. 23:41
Þetta er ekkert smá flottur árangur sem þú hefur náð, held þú megir sko alveg við því að vera glöð í hjartanu, hvort sem það er cheesy eður ei…
Er annars búin að bæta þér á linkalistann (og á google reader-inn minn, les öll blogg þannig…), hlakka til að halda áfram að fylgjast með þér.
Ekki væri verra að fá myndaaðgang.