Dídí í átaki

Archive for apríl 2008

Vigtun fjörutíu og þrjú

Posted by: Dídí on: 29. apríl, 2008

Það fóru 1,4 kíló þessa vikuna! Það þýðir að ég er búin að missa hvorki meira né minna en 37,5 kíló en það þýðir að ég er hálfnuð og 150 grömmum betur en það!!!

Ég er alveg ógeðslega happy! Loksins hefur það gerst, búin að ná half way mark. Óhugsandi fyrir [...]

Léleg vika

Posted by: Dídí on: 27. apríl, 2008

Jæja, ég hef ekki mikla trú á þessari viku. Er búin að vera ofsalega þrútin öll og eitthvað léleg. Stalst svo á vigtina og er alveg kílói þyngri en í seinustu vigtun… En maður heldur samt bara áfram. Þetta er svo sem bara mér að kenna, fór í vinnudjamm á föstudaginn, langaði ekkert spes en [...]

Vigtun fjörutíu og tvö

Posted by: Dídí on: 22. apríl, 2008

Urr purr, fór upp um 600 grömm. En það er ekkert skrítið, búin að borða kvöldmatinn (sem er nú nánast 600 grömm), svo er líka vöðvauppbygging þar sem líkaminn er að venjast þessu öllu og byggja upp vöðva til að aðstoða við stöðuna. Eins er bjúgsöfnun meðan ég er að venjast því að standa svona [...]

Sunnudagsblaðrið

Posted by: Dídí on: 21. apríl, 2008

Jæja, þá er þessi vika að kvöldi komin. Hún var hreint ágæt, gott að vera komin í vinnu loksins, líður líka ágætlega þarna.
En matarmálin voru kannski ekki alveg tipp topp, ekki eins og ég vil hafa þau en þetta er nú samt alveg fyrirgefanlegt svona miðað við aðstæður.
Svona leit hún út:
Skyldan
Fiskur [...]

Helgarplanið

Posted by: Dídí on: 19. apríl, 2008

Sofa, slappa af, borða góðan mat, læra og liðkandi og styrkjandi göngutúrar eða ræktin.
Já, svona mis skemmtilegir punktar þarna en verður samt sjálfsagt voða ljúft. Eins erfitt og það er að standa í vinnunni þá er ég greinilega að venjast þessu því svona 3 tímum eftir vinnu er ég búin að jafna mig [...]

Gengur vel

Posted by: Dídí on: 17. apríl, 2008

Jæja, þá er annar dagurinn að baki. Nestið hefur bara gengið vel, í gær fékk ég mér hrátt grænmeti, túnfisksalat og hrökkbrauð, í dag sauð ég mér fisk í örbylgjuofninum og fékk mér afgangsgrænmeti með. Mamma hefur verið svo elskuleg að elda fyrir okkur kvöldmat þessa fyrstu tvo daga sem hefur verið mikil [...]

Fyrsti dagurinn í nýju vinnunni

Posted by: Dídí on: 16. apríl, 2008

Úff… var að koma heim úr vinnunni! Dauðþreytt! Engin smá breyting frá því að sitja heima allan daginn.
Ég fékk semsagt vinnu í búð sem selur föt í stórum stærðum. Held að mér hafi bara gengið ágætlega í dag, náði að selja nokkrar flíkur, held að þetta eigi ágætlega við mig, allavega þegar ég [...]

Vigtun fjörutíu og eitt

Posted by: Dídí on: 15. apríl, 2008

Ég er víst komin með vinnu svo vigtanir verða núna á einhverjum undarlegum tímum. Einu vigtanir sem henta eru á þriðjudögum milli sjö og átta og svo fundur átta. Veit ekki hvort ég á eftir að nenna eitthvað á fundi þá… En allavega, ég er komin með vinnu!
Í þessari viku fóru 300 grömm, [...]

Túnfisksvefja

Posted by: Dídí on: 14. apríl, 2008

Er búin að vera að fullkomna túnfisksvefjuna mína upp á síðkastið, held að ég sé komin með ágætis uppskrift núna!
Túnfisksvefja

1 tortilla (60 grömm)
60 g túnfiskur
1 harðsoðið egg
50 g rauðlaukur
30 g létt majó (eða majó/sýrður rjómi)
2 blöð lambhagasalat
4 gúrkusneiðar
6 ræmur appelsínugul paprika
Skerið eggið og laukinn, blandið vel saman við majó og túnfiskinn. Leggið salatblöðin yfir tortilluna, [...]

Garfield II

Posted by: Dídí on: 13. apríl, 2008

Long time no write! En það þýðir samt ekkert slæmt. Hef bara ekkert haft að segja ykkur dömur mínar og herrar. Um helgina er ég búin að vera sjúklega dugleg að læra, búin að klára þrjú söguverkefni sem hafa fengið að sitja á hakanum ansi lengi. Svo gerði ég mér lasagne í gær! [...]


Nýleg ummæli

allamalla við Enn á lífi
Oscar Ferrari við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
Gerður við Enn á lífi

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 88,010 hits

a

Sarpur

 

apríl 2008
M Þ M F F L S
« mar   maí »
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
282930