Posted by: Dídí on: 31. mars, 2008
Þá er enn ein vikan liðin og vigtun handan við hornið. Ég vil alveg endilega ná 35 kílóa áfanganum enda komin framyfir á markmiðum, þrátt fyrir drastíska endurskoðun.
Svona leit vikan út:
Skyldan:
Fiskur 6 1/2x
Kjöt 3x
Egg 4x
Lifur 1x
Valið:
Kjúklingur 1 1/2x
Feitur ostur 4 1/2x
Morgunkorn 3x
Extrað:
21 af 21 krossi
—
Keypti mér ótrúlega flottan gallajakka áðan og hann var númer 44.
Hann er raunar og lítill eins og er, þ.e. ég get ekki hneppt honum en það kemur væntanlega bara mjög fljótlega, þá líka get ég notað hann lengur.
En jæja, vonast til þess að geta sett inn nýjar myndir og svona á miðvikudaginn, orðin ferlega spennt.
…..tek undir með síðasta ræðumanni – þú ert þvílíkt skipulögð og dugleg ég segi bara tuhh tuhhh fyrir næstu vigtun – þú nærð þessu stelpa
Held nú reyndar að gallajakkar séu flottastir opnir.
Ég átti nefninilega einn sem ég notaði til að mæla árangurinn hjá mér, með smellum sem sprungu opnar þegar maður andaði til að byrja með en fóru svo að haldast smelltar þegar á leið prógrammið.
Bestu óskir um gleðilega vigtun, sá gamli.
Sælar….mig langar svo að biðja þig um að fá lykilorð :=/ Er sjálf að fara að byrja á morgun á danska eftir 2 ára pásu…losaði mig við 25 kg þá en þau eru komin ölll til baka og 10 til viðbótar sem er auðvitað bara grátlegt!!! Ég segi því bara go girl og ekki gefast upp þó á móti blási…maður má ekki hætta á miðri leið, það er alveg ömurlegt. En ég ætla nú að hefja mína leið aftur og hef verið að fylgjast með þér í leyni heheh og dáist af þér :=) Ég þarf að losa mig við amk 50 kg þannig að það er verkefni framundan!!!! BK.Edda
Held að stjörnuspáin hljóti að benda til þess að ósýnilegu kraftarnir fjarlægi af þér mörg grömm á morgun 
Hlakka til að sjá tölur!
P.s. bað um daginn um lykilorð á myndirnar þínar en hef ekkert svar fengið frá þér – langar rosalega að fá að sjá myndir af árangrinum hjá þér
Ég er ekki nógu kjörkuð (ennþá) til að setja inn myndir sjálf, geri það kannski síðar.
Alltaf gaman að fylgjast með þér, tala ekki um þegar þrekið dvínar aðeins hjá manni sjálfum,
þá virkar það alltaf að lesa hérna inni og maður kemmst í gírinn
Má ég kannski biðja um lykilorð líka 
Good luck
Þú ert svo dugleg. Heldur mér við efnið. Má ég ekki líka byðja um lykilorðið og fá að sjá hvað þú ert orðin flott
Flott vika! Þú ert alltaf jafn dugleg, hlakka til að sjá tölur í kvöld
1. apríl, 2008 kl. 8:16
Ég dáist alveg af því hvað þú ert dugleg og staðföst


Frábært að fylgjast með þér
Þinn dugnaður amk ýtti við mér að fara að “drullast” aftur á rétta sporið
Takk fyrir mig