Dídí í átaki

And the beat goes on

Posted by: Dídí on: 25. mars, 2008

Afgangurinn af páskunum gekk vel, ég stóðst páskaeggin alveg og í raun var það mikið auðveldara en ég hélt! Þetta var heldur í raun ekki löngun í páskaegg heldur bara svo mikill hluti af páskunum, mér finnst páskaegg ekkert svo góð! Vont nammi í þeim og súkkulaðið orðinn algjör viðbjóður. Gefið mér þá frekar plötu af Green og Blacks lífrænu mjólkursúkkulaði. ;)

Ég fór vel framyfir á extranu, alveg 6-9 krossum, en það er ekki mikil synd á páskunum. :) Annars var ég alveg 100% held ég bara! Svona leit vikan sem var að líða út:

Skyldan
Fiskur 5x
Kjöt 3x
Egg 4x
Lifur 1x

Valið
Kjúklingur 2 1/2x
Feitur ostur 5x
Morgunkorn 3x

Extra
27-30 af 21

Eins og þið sjáið þá er þetta allt í lagi vika miðað við hátíðarnar. Ég borðaði 5 sinnum fisk sem ég nú bara nokkuð gott og svo aftur 5 sinnum feitan ost, sem er ekki alveg jafn gott. ;) Hef fundið fyrir því að meiri ostur þýðir minni léttingur.

Anyways, nú er vigtun á morgun og 100 grömm í 35 kílóin. Ég fæ þvílíkt flashback í jólin en þá stóð ég í stað í 24,9 og var frekar ósátt. Þá gerði ég ekkert til að valda því, allavega alls ekkert meira en ég hef gert þessa páskavikuna. Ég veit að það gerir ekkert til þótt ég standi í stað eða fari smá upp, en þið vitið samt alveg hvernig þetta er, maður verður svo háður þessu og maður sveiflast líka pínu með vigtinni.

Annars er ég líka búin að vera dugleg í ræktinni, fer núna 2-3x í viku að lyfta og svo að brenna þegar ég nenni.

Jæja! Ég vil fá 500 grömm eða meira á morgun og hana nú! :lol:
Heyrumst!

3 svör to "And the beat goes on"

alveg frábær vika og samt voru páskar!! húrra fyrir þér.
Vona að þú fáir meira en 500 gr, átt það sannarlega skilið.
Annars er það flott hjá þér að vera komin á fullt í ræktinni, átt eftir að sjá mikla breytingu á kroppnum þá :)
Verð að fara að setja upp svona viku hjá mér, merkja skylduna og val og sjá hvað það er sem hægir já eða hraðar vikgtinni í rétta átt. Mjög sniðugt :)

flott vika og það páskavika!

gangi þér vel á vigtinni :)

Hæ Dídí
Mig langar rosalega til að fá að sjá fyrir og eftir myndirnar hjá þér :) Er svo gaman að fylgjast með hvað þetta gengur vel hjá þér.

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,956 hits

a

Sarpur

 

mars 2008
M Þ M F F L S
« feb   apr »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31