Dídí í átaki

Í lok viku

Posted by: Dídí on: 17. mars, 2008

Seinasta vika var góð út frá danska kúrnum. Ég missti mig þarna aðeins á þriðjudag eins og ég játaði fyrir ykkur, en það virtist ekki hafa áhrif á vigtina á miðvikudag. Svo hélt ég bara ótrauð áfram og kláraði vikuna með stæl. :)

Skyldan
Fiskur 6 1/2x
Kjöt 3x
Egg 4x
Lifur 1x

Valið
Kjúklingur 2 1/2x
Feitur ostur 2x
Morgunkorn 3x

Extra
Þrír krossar fram yfir miðað við 9 krossa refsingu fyrir þriðjudaginn.

—–

Annars átti ég bara ágæta viku, gerist voða lítið hjá mér þessa dagana… Á föstudaginn reyndi ég að baka rauðrófu en hún varð ógeðsleg, þvílíka moldarbragðið, hún fór bara beint í ruslið. Prófa það ekki aftur!

Í gær gerði ég svo nokkurs konur Club Sandwich í hádegismat. Það var hamborgarabrauð, sinnepssósa, steiktir sveppir og paprika, kál, laukur, steiktur kjúklingur og ostur. Kom vel út, smá tilbreyting. :) Svo í gærkvöldi gerði ég nýja súpu, fann uppskriftina á netinu en breytti henni smá. Með var svo sellerírótarsalat og grillað lambakjöt. *slef*

Club sandwich

1 hamborgarabrauð
100 g sveppir
50 g paprika
Nokkrir laukhringir
Kínakál
20 g létt majó
5 g Dijon honey mustard
40-60 g kjúklingur (forsteiktar lundir t.d.)
25 g feitur ostur

Skerið sveppina í sneiðar og paprikuna í strimla og steikið á pönnu. Hitið lundirnar á pönnunni og bræðið ostinn ofan á þeim. Hrærið saman majó og sinnepi. Ristið hamborgarabrauðið þar til heitt og stökkt. Smyrjið sósunni yfir brauðið og setjið sveppi og papriku á botninn, svo kjúllan og ostinn, þar ofan á kál og laukhringi og lokið svo.
Muna að borða með 150-200 g af grænmeti.

Súpuna góðu fann ég á þessari síðu og breytti henni smá. Svona var hún hjá mér:

Chilisúpa með eða án linsa

1 stór rauðlaukur
1 msk matarolía
1 msk paprikuduft
2 hvítlauksrif
1 dós niðursoðnir tómatar, diced
1 rauð paprika
1 gul paprika
6 gulrætur
2 rauðir chili
1 líter sjóðandi vatn
1 grænmetisteningur
1 kjúklingateningur

Skerið rauðlaukinn smátt og látið hann krauma í olíunni, með paprikuduftinu. Skerið restina af grænmetinu smátt og pressið hvítlaukinn. Setjið allt út í pottinn og látið sjóða í 40 mínútur. Ef þið viljið linsubaunir með þá er best að sjóða þær sér þar sem þær eru vigtaðar soðnar en ekki þurrar. Rauðar linsubaunir sjóða á 10-15 mínútum.

Nú er ný vika byrjuð, vigtun á miðvikudaginn. Miðað við ganginn þessa dagana, lítið mikið lítið mikið þá á ég nú ekki von á miklu. Vona þó eftir einhverjum létting. :)

En ég ætla að láta mig hverfa núna! *púff*

3 svör to "Í lok viku"

Flott vika! Taktu secret á þetta og sjáðu fyrir þér stórann létting ;) hehehe

segi það sama secret-ið virkar, ég ætla sko að gera það ;)

Þú ert svo dugleg! Ætla sko pottþétt að prófa borgarann *slef*!!!

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,859 hits

a

Sarpur

 

mars 2008
M Þ M F F L S
« feb   apr »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31