Dídí í átaki

Syndaaflausn!

Posted by: Dídí on: 11. mars, 2008

Já, Dídí er sko ekkert fullkomnari en aðrir!

Dagurinn í dag var nú meira klúðrið og græðgin. :? Morgunmaturinn var borðaður í hádeginu með hádegismatnum því ég nennti ekki að borða þrátt fyrir að vera dauðhungruð. Var svo kalt að ég skreið bara upp í rúm með tölvuna mína. Þá náttúrulega gleymdi ég að borða ávöxtinn. Klúður!

Svo seinna fór ég í heimsókn til vinkonu minnar. Við settum saman eplapæ til að hafa í eftirrétt og ég stakk upp í mig deigi af og til! :? Raunar var í þessu spelt og agave sýróp svo blóðsykurinn ætti að vera skárri en ef ég hefði étið sykur. Svo elduðum við mat. Í forrétt var sveppur fylltur með ogguponsu piparosti (sem ég át) og spínat með furuhnetum. Eftir matinn var ég svo að nasla hneturnar. :shock:
Ég eldaði svo matinn sem var kjúlli, grænmeti, sýrður rjómi, kókosvatn og pínu hveiti. Ég var ekki með vigt svo ég hef ekki hugmynd hvað ég át. Ég hinsvegar fékk mér gulrætur með svo ég er nokkuð örugg með grænmetisskammt. Svo var DDV ís og bakað epli í eftirrétt, aftur ekki vigtað.

Fyrir þessar syndir ætla ég að merkja heila 9 krossa í extrað og hana nú!

Hinsvegar hef ég verið að uppgötva kókosvatn. Í kókosvatni eru 124 hitaeiningar í 500 ml brúsa, sem er ekki neitt, og er þetta góð substitute fyrir kókosmjólk ef þú notar sýrðan rjóma með. Þetta er náttúrulega ekkert í prógramminu en þetta er voða svipað og tómatdjús í hitaeiningum og hann mátti drekka 2,5 dl af á dag, allavega í gamla prógramminu.

En núna á ég alls ekki von á góðri vigtun, vegna þessa og annarra ástæðna. Ég er þvílíkt þanin og er ferlega illt í móðurlífinu svo ég hlýt að vera að byrja á túr. :( Á alveg eins von á að hafa þyngst.

En ég meina, what’s done is done og það eina sem skiptir máli er morgundagurinn. Þetta á ekkert eftir að hafa nein áhrif á mig á morgun, ég borða bara eftir prógramminu. :)

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,859 hits

a

Sarpur

 

mars 2008
M Þ M F F L S
« feb   apr »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31