Dídí í átaki

Morgunstund gefur gull í mund

Posted by: Dídí on: 11. mars, 2008

Já, hef tekið eftir því upp á síðkastið, hef verið að vakna fyrr og allt í einu virðist vikan miklu lengri. :lol:

Annars er vigtun á morgun, ég vona nú eftir einhverjum létting en það kemur allt í ljós. Á móti mér eru nokkrir þættir: Ég var að byrja að lyfta, þetta mánaðarlega er handan við hornið, ég fullnýtti nánast extrað.
Meðbyrinn er hinsvegar líka til staðar: Ég var 100% alla vikuna, ég er farin að vakna fyrr og þar af leiðandi brenna meira, ég er farin að hreyfa mig meira, ég borðaði mikið af fisk.

En svo er óþekkta breytan, og sú sem skiptir mestu máli, líkaminn. Hann er dyntóttur eins og við þekkjum öll. :) En maður getur bara vonað og gert sitt besta!

Síðasta vika var nokkuð góð, en svona leit hún út:

Skyldan
Fiskur 6x
Kjöt 3x
Egg 4x
Lifur 1x

Valið
Kjúklingur 2 1/2x
Feitur ostur 3x
Morgunkorn 3x

Extra
20/21 kross

Mér er ekki að takast nógu vel að halda í við mig með extrað. Þetta er aðallega ísinn og svo í matinn. Nota orðið mikið teninga í súpur og rétti og það telur fljótt. Tómatsósan telur svo, en ég nota 3 teskeiðar á borgarann minn. Svo smáhlutir eins og sinnep og svona. Í raun er ég ekkert í neinu óhófi, nema á ísnum. Ætti að reyna að takmarka mig við ís 2x í viku. Svolítið erfitt þegar viss aðili á heimilinu er alltaf að éta nammi, kex, snakk etc. ;) *hint* Þessi vissi aðili keypti sér páskaegg númer 5 þakka þér fyrir og ætlar að vera að maula á því alla páskana. Eins og venjulega verður eggið í djúpum disk á stofuborðinu alla páskana. Þetta á eftir að verða þraut en mér skal takast þetta! Ætla sko ekki að borða svo mikið sem einn súkkulaðibita! Frekar leggst ég þá á beit í ís og eplapæ og kanilsnúða að hætti DDV.

En ég kveð ykkur nú að sinni! Kem svo vonandi með góðar fréttir á morgun. ;)

8 svör to "Morgunstund gefur gull í mund"

Sko ef ég ætti maka sem væri étandi snakk og nammi fyrir framan mig þá væri ég búin að henda honum öfugum út ;-) mér finnst bara sjálfsagt að hann geri mér þann greiða að hjálpa mér með því að éta ekkert svona heima enda er hann að fá mjóri og fallegri konu í staðinn :-) hehe

úff já það verður erfitt að standast páskaeggið bölv.. en það er bara ein hindrunin á þessari leið okkar í léttingunum.
Vissi ekki að maður brenndi meiru ef maður vaknar fyrr en það er auðvitað rökrétt, ég ætti því að brenna vel því hér í ræs ekki seinna en 07 á hverjum morgni ;) Hlakka til að sjá nýjustu tölur á morgun.

Ég var að lesa í dönsku blaði í gær um tilraun sem var gerð á vinnustað. Þar var sett nammi í glerskál á annan staðinn og nammi í litaða skál með loki á hinn staðinn. Í báðum tilvikum var þetta staðsett í kaffistofunni og fólk mátti fá sér með kaffinu. Það kom í ljós í lok tilraunarinnar að mun minna hafði borðast þar sem nammið var í skál með loki. Þannig að nú legg ég til að þetta risapáskaegg verði bara sett í litaða skál með loki þá er bæði ilmurinn mun minni og þú þarft ekki að hafa þetta fyrir augunum alla dagana :)

æi þetta var eitthvað óskýrt hjá mér ég meinti að tilraunin var gerð á tveimur vinnustöðum.

SVo er líka spurningin um að óvart færa stofuborðið þar sem að sólin skín og þá gerist eitthvað skemmtilegt og engum langar í súkkulaðið….

Það verður gaman að sjá nýjar tölur. Þú stendur þig nú svo vel að ég held þú þurfir ekki að hafa neinar áhyggjur. Svo, eins og þú veist, þarf maður oft bara að líta til lengri tíma, því þyngdin minnkar ekki alltaf alveg jafnt og þétt á milli vikna. En þegar maður skoðar lengra tímabil sér maður hvað árangurinn er góður ;)

Flott vika! Vildi að ég gæti borðað svona mikinn fisk, á erfitt með að elda hann, hann er dýr hérna og langt frá því að vera eins góður og heima!
Hlakka til að sjá nýjustu tölur á morgun :)

Flott vika :) en eins og þú segir er bara visst sem maður hefur stjórn á í sambandi við léttinginn, en manni líður samt miklu betur þegar maður er að gera sitt besta :)
Hlakka til að sjá tölurnar

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,956 hits

a

Sarpur

 

mars 2008
M Þ M F F L S
« feb   apr »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31