Posted by: Dídí on: 7. mars, 2008
Vildi deila með ykkur þessari uppskrift, mjög góð, allavega fyrir þá sem borða baunir.
2 laukar
1 paprika
2-3 gulrætur
4 hvítlauksrif
2 tsk olía
1 dós niðursoðnir tómatar (crushed ef þið viljið spara tíma)
2/3 hluti stór grænmetisteningur (leysa upp í 2 dl af vatni)
1 tsk paprikuduft
1 dós forsoðnar nýrnabaunir
1-2 tsk chiliduft
1/2 – 1 tsk kumminduft
250 g nautahakk
Skerið lauk, papriku og gulrætur. Pressið hvítlaukinn. Hitið olíuna í potti og látið grænmetið og hvítlaukinn krauma í henni. Skerið tómatana og setjið út í pottinn ásamt tómatleginum, soði og paprikudufti. Látið sjóða við vægan hita í 5-10 mínútur. Á meðan grænmetishlutinn er að malla sigtið vökvann af baununum og skolið vel. Steikið hakkið.
Bætið 220 grömmum af baunum og 170 g af nautahakki út í og látið malla í 5 mínútur. Skiptið í tvo jafna skammta. Njótið! Hægt er að frysta annan helminginn og geyma þar til letin kemur yfir ykkur.
Krossar
1x kjöt
1x extra
8. mars, 2008 kl. 16:53
Jömm! Ég þarf að prófa þessa