Dídí í átaki

Markmið

Posted by: Dídí on: 6. mars, 2008

Nú hljóma ég eins og versti hræsnari, en ég uppfærði markmiðin mín!

Ég fór að pæla og pæla og pæla síðan aðeins meira. Áður hafði ég ætlað líkama mínum að léttast um að meðaltali 900 grömm á viku í rúmt eitt og hálft ár. Ég held að það sé til of mikils ætlast af einum líkama að viðhalda því meðaltali í svona langan tíma.

Ég lagðist þá í meðaltalsreikninga, eitthvað sem ég dunda mér reglulega við. :lol: Ef ég geri ráð fyrir 7 vikum fyrir hver fimm kíló héðan í frá, þá verður meðaltalið mitt að lokum rétt tæp 800 grömm á viku. Það held ég að sé mun skynsamlegri og raunhæfari tala. Samkvæmt því næði ég markmiði mínu (75 kg) þann 29. apríl 2009. Það er nú bara handan við hornið e’haggi! ;)

Næsta markmið er þá eftir þrjár vikur, þann 26. mars. Þá ætla ég að ná 35 kílóum. Í það eru 2,7 kíló sem gera 900 grömm á viku. Hljómar vel. :)

7 svör to "Markmið"

hljómar vel :)
Ég er einmitt að fara að endurskipuleggja markmiðin mín, held að kíló á viku sé ekki raunhæft hehe svona í langtíma litið :) Betra að gefa sér rúman tíma fyrir hvert markmið í staðinn fyrir að ná aldrei markmiðunum á réttum tíma :)

Finnst bara í góðu lagi að uppfæra markmiðin. Nákvæmlega ekkert að því. Stundum þarf bara að endurskilgreina og rétta sig af… svona kannski svipað og ef maður þarf að skuldbreyta láni ;) Bara minni vextir og auðveldara að höndla ;)

Glæsilegt hjá þér að uppfæra markmiðin hjá þér. Þú ert búin að ná rosalega góðum árangri bara að halda áfram :)

með kveðju

Emil

Ég myndi hafa áhuga á að fá að sjá myndirnar endilega sendu mér póst á krafturinn@gmail.com ef þú vilt leyfa mér að sjá :)

takk takk

kveðja

Emil

Hæ sæta..veistu þú ert búin að vera svo dugleg að ég skil vel að líkaminn segi einu sinni ég get ekkert núna ;-) sérsaklega eftir síðustu viku. Þú missir örugglega fullt í næstu viku. Ég er komin á byrjunarreit eins og venjulega..þarf allveg pepp skvís ;-)

já það er sko alveg eðlilegt að markmiðin breytist, þó svo gott sé að setja sér markmið þá stjórnum við líkamanum ekki og getum ekki ætlast til nema svo mikils, þannig að vera raunsæ í þessu er bara frábært :)

Gangi þér vel

Eins og allir hafa sagt þá er bara hárrétt ákvörðun að breyta markmiðinum þannig að þér finnist þau raunhæf en samt krefjandi. Þannig að þú ert ennþá með glimmrandi fín markmið :)

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,859 hits

a

Sarpur

 

mars 2008
M Þ M F F L S
« feb   apr »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31