Posted by: Dídí on: 4. mars, 2008
Matur er góður, alltaf að komast meira og meira að því. Eitt af kostunum við danska, fyrir mig, hefur verið að læra upp á nýtt að elda. Ég hef mjög gaman af eldamennsku, meira að segja hússtjórnarskólagengin.
En var ekki að nýta mér þessu kunnáttu mína. Svei’attan. Þetta er allt að koma núna.
Á sunnudaginn var ég með salat með lambalundum. *slef*
Klettasalat
Lambhagasalat
Appelsínugul paprika
Radísur
Gulrætur
Agúrka
Furuhnetur
Sítrónuolía
Lambalundir (ca 300 g)
Takið lambalundirnar úr ísskápnum nokkru fyrir og leyfið þeim að ná stofuhita. Berjið lundirnar með flötum kjöthamri (eða kökukefli með plastfilmu yfir) og berið smá olíu á. Kryddið með smá nýmöluðum svörtum pipar. Setjið til hliðar.
Undirbúið salatið, ristið furuhneturnar og skerið grænmetið í hæfilega bita. Setjið 150 – 200 grömm af grænmeti á disk og drizzlið yfir 5 grömmum af sítrónuolíu og 5-10 g af furuhnetum.
Steikið lundirnar í 1-2 mínútur á hvorri hlið, skerið þær síðan í litla bita og dreifið yfir salatið. Njótið svo með bestu lyst.
Það er örugglega gott að borða smá súpu með til að fylla upp í skammtinn, eða þyngja salatið með alfaalfa (refasmára) og meira grænmeti.
—–
Svo var ég áðan með Chili con carne, set uppskriftina af því inn seinna. Annars er ég búin að uppgötva af hverju ég gat sett svona mikið af kryddi í mexíkó súpuna mína, það er ekkert bragð af chili’inu mínu!! Það er ekki útrunnið, frekar nýbúið að kaupa það, en það er ekkert bragð og alls enginn sterkleiki í því, gæti sett pappírsagnir út í staðinn fyrir þetta! Samt er þetta frá Prima (gamla Merrild). Kennir mér að vera krydd fasisti, raunar er ég það, vil helst frá Pottagöldrum.
En jæja, svo er vigtun á morgun, verður gaman að sjá hvað kemur út úr því.
Hej hej, geggjað girnilegt hjá þér. Það er svo gaman að borða og sérstaklega ef það lítur svona út hihi.
Ég tók mér það bessaleifi að bæta þér á linkalistann minn, vona að það sé í lagi.
Baráttu kveðja
ps. ég er líka hússtjórnarskóla gengin.
4. mars, 2008 kl. 22:48
ég lærði það þá vikonu minni um daginn sem var að gera gulrótarsúpu (uppskrift á síðunni minni) að sjóða heilan chilli með og taka hann svo úr þegar maður borðar súpuna, gefur alveg rosalega gott cilli bragð án þess að vera of sterkt.