Dídí í átaki

Horft yfir liðna viku

Posted by: Dídí on: 3. mars, 2008

Ég get ekki sagt annað en að vikan hafi verið góð, að dönskum sið. Ég náði ekki alveg þeim markmiðum sem ég setti mér í byrjun viku en þá er bara að gera betur í komandi viku. :)

Skyldan
Fiskur 5 1/2x
Kjöt 3x
Egg 4x
Lifur 1x

Valið
Kjúklingur 2x
Feitur ostur 3x
Magur ostur 2x
Morgunkorn 3x

Extra
19/21

Ég er bara nokkuð sátt við þetta, mætti nota minna af extranu en annars er þetta held ég bara fínt. :) Ætla að reyna að ná fisknum upp í 6x í næstu viku og halda ostnum þarna á milli 2x-4x. Takmarkið er að klára allavega ekki extra, helst fara ekki yfir 15 krossa. Eins verð ég að hætta að éta tyggjó og svoleiðis bull. Er núna komin yfir í sykurlausan Opal og Tópas, samkvæmt nýju reglunum má fá sér fimm slíka (eða tyggjó eða brjóstsykur) á dag, en ég get engan vegin haldið mig við fimm! Verð bara að skera algjörlega á þetta!

Svo er ég að byrja í ræktinni þessa dagana og stefni á að fara 2x í viku svona til að byrja með, oftar ef ég nenni. Svo mun ég auka þetta, allavega upp í 3x í viku. :)

7 svör to "Horft yfir liðna viku"

Vá hvað þú ert alltaf dugleg :) Færð örugglega stóran létting aftur í næstu viku ;)

Þetta er örugglega mjög flott hjá þér, hef bara ekki nokkuð vit á danska ;)

Snilld að þú sérst að skella þér í ræktina :) Þá muntu sjá verulegar breytingar á fituprósentunni spái ég. Ég finn líka alltaf mun á húðinni þegar ég fer að æfa af viti.

hva maður skreppur frá í nokkra daga og bara nýtt lúkk hjá þér ;) rosa flott, vikan hefur greinilega bara verið nokkuð góð hjá þér enda dugnaðarforkur þarna á ferð ;)

Flott vika, það er einmitt voða spennandi að byrja í ræktinni :)

Gangi þér vel

Hef heldur ekkert vit á Danska.. en mér finnst þetta líta bara vel út. Líst vel á að þú farir í ræktina og spái því að þú finnir góðan mun á líðaninni við það. Passaðu samt að finna þér aðra hreyfingu ef ræktin passar þér ekki, eða hef þér fer að leiðast þar. Um að gera að finna eitthvað sem manni finnst skemmtilegt.
Ætlaði annars bara að heilsa upp á þig. Gangi þér áfram svona vel, hetja :D

Nei vá flott nýja útlitið!

Ég segi það sama með fiskinn, er alltaf að reyna að borða meira af honum en er eitthvað svo hugmyndasnauð þegar kemur að honum !!

Hlakka til að sjá næstu tölur! Gangi þér rosa vel!

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,956 hits

a

Sarpur

 

mars 2008
M Þ M F F L S
« feb   apr »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31