Posted by: Dídí on: 31. mars, 2008
Þá er enn ein vikan liðin og vigtun handan við hornið. Ég vil alveg endilega ná 35 kílóa áfanganum enda komin framyfir á markmiðum, þrátt fyrir drastíska endurskoðun.
Svona leit vikan út:
Skyldan:
Fiskur 6 1/2x
Kjöt 3x
Egg 4x
Lifur 1x
Valið:
Kjúklingur 1 1/2x
Feitur ostur 4 1/2x
Morgunkorn 3x
Extrað:
21 af 21 krossi
—
Keypti mér ótrúlega flottan gallajakka áðan og hann var númer [...]
Posted by: Dídí on: 27. mars, 2008
Ég var hjá heimilislækninum mínum í fyrradag sem er svo sem ekki merkilegt. Hún tók eftir breytingu á mér frá því að hún sá mig seinast, fyrir sex kílóum, og vildi fá þetta skjalfest svo ég steig á vigtina hennar. Þegar hún setti töluna inn í tölvukerfið þá rak ég augun í eldri þyngdartölu og [...]
Posted by: Dídí on: 26. mars, 2008
Helvítis djöfulsins andskotans, djöfullinn vissi ég þetta. Fór upp um 200 grömm! Fyrir hvað?! Ekki rassgat! Ég er mega pirruð og þá meina ég mega pirruð. Má líka alveg vera pirruð, þótt ég sé á danska kúrnum og gangi vel þýðir það ekki að ég megi ekki vera pirruð þegar það kemur svona upp. Og [...]
Posted by: Dídí on: 25. mars, 2008
Afgangurinn af páskunum gekk vel, ég stóðst páskaeggin alveg og í raun var það mikið auðveldara en ég hélt! Þetta var heldur í raun ekki löngun í páskaegg heldur bara svo mikill hluti af páskunum, mér finnst páskaegg ekkert svo góð! Vont nammi í þeim og súkkulaðið orðinn algjör viðbjóður. Gefið mér þá frekar plötu [...]
Posted by: Dídí on: 22. mars, 2008
Búnir að vera fínir páskar hér á bæ hingað til.
Á skírdag var ég með fyllta kalkúnabringu. Rosa gott. Í fyllingunni voru apríkósur, furuhnetur, brauð og grænmeti. Svo var sósa með. Sú máltíð var virði 9 extra krossa.
Í gær, föstudaginn langa, grillaði ég lambahrygg, var með tzatziki sósu, salat og grænmetisspjót sem [...]
Posted by: Dídí on: 19. mars, 2008
Ég var svo stressuð þegar ég var í leiðinni í vigtunina, veit ekkert af hverju og fannst það hálf kjánalegt. Reyndi trekk í trekk að sannfæra sjálfa mig að “what will be will be” og ég gæti lítið gert núna. Hef ekki verið svona stressuð fyrir vigtun í langan tíma!
En svo steig ég [...]
Posted by: Dídí on: 18. mars, 2008
Jájá, þetta veikindakjaftæði ætlar ekkert að sleppa mér alveg strax, láta Dídí litlu þjást aðeins meira.
Ég er s.s. farin að verða sæmileg í mjöðmunum og bakinu eftir mikla sjúkraþjálfun en fer þá náttúrulega að taka betur eftir sársauka annarsstaðar í líkamanum sem hefur verið blokkaður út af sterkari sársaukaboðum. Það er semsagt sköflungurinn [...]
Posted by: Dídí on: 17. mars, 2008
Seinasta vika var góð út frá danska kúrnum. Ég missti mig þarna aðeins á þriðjudag eins og ég játaði fyrir ykkur, en það virtist ekki hafa áhrif á vigtina á miðvikudag. Svo hélt ég bara ótrauð áfram og kláraði vikuna með stæl.
Skyldan
Fiskur 6 1/2x
Kjöt 3x
Egg 4x
Lifur 1x
Valið
Kjúklingur 2 1/2x
Feitur ostur 2x
Morgunkorn 3x
Extra
Þrír krossar [...]
Posted by: Dídí on: 13. mars, 2008
Ég afrekaði það í gær að fara í sund! Hef ekki farið í sund í háa herrans tíð, ár eða svo! Sundbolurinn minn er náttúrulega orðinn allt of stór og ég þurfti að næla hann saman í bakinu svo hann rynni ekki niður axlirnar á mér. Mikið er nú gott að fara í [...]
Posted by: Dídí on: 12. mars, 2008
Vá hvað ég átti ekki von á þessu, það fóru 1,5 kíló!
Þá eru farin í heildina 33,8 kíló og stendur kílóatalan í 115,9. Það þýðir 1,2 kíló í næsta markmið og tvær vikur. Ég ætti nú að geta náð því.
Svo nálgast ég óðfluga “half way mark”. Eftir 3,6 kíló [...]
Nýleg ummæli